Snýr heim úr atvinnumennsku til að verja mark uppeldisfélagsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. júlí 2024 17:31 Jökull í búningi Exeter City á sínum tíma. Hann mun hins vegar að öllum líkindum spila í treyju Aftureldingar fyrr en síðar. Harry Trump/Getty Images Markvörðurinn Jökull Andrésson er á leið hingað til lands eftir að hafa spilað erlendis frá árinu 2017. Hann mun ganga í raðir Aftureldingar og verja mark liðsins í Lengjudeild karla í knattspyrnu.
Það er mbl.is sem greinir frá þessu. Þar segir að hinn 22 ára gamli Jökull, sem á að baki einn A-landsleik og sjö leiki með yngri landsliðum Íslands, sé á leið í heimabæinn til að verja mark Aftureldingar eftir fjölda ára ytra. Jökull hefur verið á mála hjá Reading sem mun leika í ensku C-deildinni á komandi leiktíð undanfarin sjö ár. Hann hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi hjá aðalliði félagsins og verið ítrekað lánaður í neðri deildir enska boltans. Hefur markvörðurinn spilað fyrir lið á borð við Carlisle United, Stevenage, Exeter City og Morecambe. Bróðir hans, Axel Óskar, samdi við KR fyrir yfirstandandi leiktíð hér á landi og var Jökull orðaður við stórveldið úr Vesturbænum. Það virðist hins vegar ekki sem KR-ingar hafi verið tilbúnir að sækja Jökul að þessu sinni. Samkvæmt heimildum Vísis þá kaupir Afturelding markvörðinn af Reading en hann á ár eftir af samningi sínum í Englandi. Ekki er vitað hversu há upphæðin er. Afturelding er í 9. sæti Lengjudeildar með 14 stig að loknum 12 umferðum.
Fótbolti Íslenski boltinn Lengjubikar karla Afturelding Mest lesið Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Handbolti Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ Handbolti Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Handbolti Sjáðu myndirnar: Blá krækiber í helvíti Handbolti Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari? Handbolti Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir Handbolti Fleiri fréttir Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjá meira