Stjórnvöld í Kína harðlega gagnrýnd í ályktun Nató-fundarins Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. júlí 2024 06:55 „Fjölskyldumynd“ í Hvíta húsinu, þar sem Joe og Jill Biden buðu til kvöldverðar. AP/Susan Walsh Stjórnvöld í Kína eru með virkum hætti að greiða fyrir hernaði Rússa í Úkraínu, segja leiðtogar Atlantshafsbandalagsins í ályktun eftir fund þeirra í Washington.
Þeir segja aukin tengsl Rússlands og Kína áhyggjuefni og eru uggandi vegna stækkandi kjarnorkuvopnabúrs Kínverja og getu þeirra í geimnum. Kínverjar eru hvattir til að láta af pólitískum og hernaðarlegum stuðningi við innrás Rússa í Úkraínu. Ráðamenn í Kína hafa lýst yfir óánægju með að Nató sé að horfa til Asíu og hvatt leiðtoga Nató-ríkjanna til að stuðla ekki að átökum þar. Þá sagði sendinefnd Kína við Evrópusambandið að ráðstefnan í Washington hefði einkennst af kaldastríðshugsunarhætti. Textinn í ályktuninni sem varðaði Kína væri fullur af lygum og áróðri. Leiðtogar frá Ástralíu, Japan, Nýja-Sjálandi og Suður-Kóreu munu taka þátt í fundarhöldum í dag. Guardian hefur eftir Danny Russel, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðerra Bandaríkjanna í málefnum Asíu, að orðalagið í ályktuninni sé afgerandi og að framganga Kínverja hafi aðeins haft þau áhrif að þétta raðir Evrópuríkjanna og bandamanna þeirra á Asíu-Kyrrahafssvæðinu. Kínverjar hafa í vikunni tekið þátt í heræfingum í Belarús, sem stjórnvöld í Póllandi fylgjast náið með.
NATO Bandaríkin Kína Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Erlent Brosið fer ekki af Hrunamönnum Innlent Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda Innlent Fleiri fréttir Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Tala látinna hækkar á Filippseyjum Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Tortryggnir í garð tolla Trumps Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjá meira