Margt óljóst í áætlunum Heidelberg Materials í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson skrifar 6. júní 2024 14:16 - Opið bréf til Þorsteins Víglundssonar, talsmanns Heidelberg Materials á Íslandi, og Eiríks Ingvarssonar, framkvæmdastjóra Eden Mining. Sælir Þorsteinn og Eiríkur! Gætuð þið upplýst Ölfyssinga og aðra Íslendinga um hversu mikið efni Heidelberg Materials ætlar sér að sækja í Litla-Sandfell, á hversu löngum tíma, og hversu lengi Heidelberg Materials ætlar að reka verksmiðjuna? Ef Heidelberg Materials ætlar ekki að kaupa allt efnið (sem er aðallega móberg) sem Eden Mining hefur leyfi til að sækja í Litla-Sandfell og samsvarar fellinu öllu, mun þá Eden Mining selja öðrum aðilum það? Myndi sú sala til annarra aðila vera á sama tíma og Heidelberg er að kaupa efni, eða myndi hún eiga sér stað eftir að kaupum Heidelbegs lyki? Ef Eden Mining mun selja öðrum aðilum efni úr Litla-Sandfelli, eftir hvaða vegum munu þeir aðallega flytja efnið? Eftir Þrengslavegi eða til höfuðborgarsvæðisins eða aðra leið? Ástæða þess að ég spyr er að þetta eru mikilvægu atriði. Það er aðeins hægt að meta áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á umhverfið og umferðina þegar svör við þessum spurningum eru skýr. Ef svör liggja ekki fyrir við þessum spurningum er einnig nokkuð óljóst hvað Ölfusingar munu í raun og veru greiða atkvæði um. Þrátt fyrir mikilvægi þessara spurninga eru þessi atriði engu að síður ekki nægilega ljós í opinberum gögnum. Ég skal útskýra hví ég segi það. Í umhverfismatsskýrslu EFLU f.h. Eden Mining segir að það sé ætlun Eden Mining að taka 18 milljón rúmmetra úr Litla-Sandfelli á 30 árum (um 600 þúsund rúmmetrar á ári) og að fellið hverfi með öllu. Hvarf fellsins er einnig staðfest á íslensku vefsíðu Heidelberg Materials undir vefsíðuhlutanum „Spurt og svarað“: Spurning og svar undir vefsíðuhlutanum „Spurt og svarað“ á íslensku vefsíðu fyrirtækisins Heidelberg Materials. Í umhverfismatsskýrslu Mannvits f.h. Heidelberg Materials eru hinsvegar áformin orðin önnur, eins og gengur og gerist með þróun fyrirhugaðra framkvæmda sem hafa enn ekki verið staðfestar. En þar stendur að aðeins standi til að sækja 0,5 milljón tonn árlega í Lambafell og Litla-Sandfell: Mannvit f.h. Heidelberg Materials, Umhverfismatsskýrsla um mölunarverksmiðju við Þorlákshöfn, bls. 21. Að því er ég best fæ séð reiknast Eden Mining svo að einn rúmmetri af móbergi vegi um tvö tonn. (Sjá umhverfismatsskýrslu EFLU f.h. Eden Mining, bls. 27, en þar er sagt að vörubíll muni aka með 30 tonn eða 15 rúmmetra.) Þetta merkir að hálf milljón tonna er 250 þúsund rúmmetrar. Í nýlegri grein eftir Þorstein í Hafnarfréttum styðst hann við sömu tölu og umhverfismatsskýrsla Heidelberg Materials en þó ekki alveg. Þar segir hann að Heidelberg Materials muni aðeins sækja „allt að“ hálfri milljón tonna í Litla-Sandfell og Lambafell: Þorsteinn Víglundsson. Hafnarfréttir. „Staðreyndir um uppbyggingu Heidelberg í Þorlákshöfn“. Hafnarfrettir.is, 7. maí 2024. Nú er auðvitað mikill munur á 0,5 milljónum tonna og óþekktri stærð sem er minni en 0,5 milljón tonn. En látum það liggja á milli hluta og til að auðvelda samtalið skulum við slá því föstu að talan sé 0,5 milljón tonn, þ.e. 250 þúsund rúmmetrar. Þrátt fyrir þá einföldun stöndum við frammi fyrir annarri hindrun. Þið sjáið að það vantar hlutfallstölur hér: 250 þúsund rúmmetrar eiga að vera sóttir árlega í Litla-Sandfell og Lambafell. En hversu mikið úr hvoru fellinu? Það kemur ekki fram. Þessar hlutfallstölur eru nauðsynlegar því hvarf Litla-Sandfells er staðfest á vefsíðu Heidelbergs á 30-40 árum. Sá tímarammi gengur hins vegar varla upp miðað við umhverfismatsskýrslu Heidelbergs: ef það átti að taka allt fellið á 30 árum með því að taka 500 þúsund rúmmetra á ári (skv. umhverfismatsskýrslu Eden Mining) þá gefur augaleið að það tekur meir en 60 ár að taka allt fellið (ekki 30-40) ef taka á helmingi minna á ári og það ekki einvörðungu úr Litla-Sandfelli heldur að hluta til úr öðru felli (skv. umhverfismatsskýrslu Heidelbergs og grein Þorsteins). Á e.t.v. eftir að uppfæra svarið við þessari spurningu á vefsíðu Heidelbergs? Ef svo er, þá væri gott að það væri gert til að koma í veg fyrir frekari misskilning hvað þetta atriði varðar. (Í þessu samhengi mætti líka spyrja að því í hvaða námu í Lambafelli Heidelberg Materials hyggst sækja efni, en þar eru reknar þrjár námur.) Ég býst við því að ef Heidelberg Materials hefur breytt sínum fyrirhuguðu plönum á þann hátt að þeir ætla mögulega að kaupa helmingi minna efni úr námunum tveimur af Eden Mining en til stóð í fyrstu að þá hljóti fyrirtækin tvö að hafa rætt það sín á milli. Ég sé því ekki betur en auðvelt hljóti að vera að upplýsa almenning um hversu mikið efni Heidelberg Materials ætli sér að nýta úr Litla-Sandfelli einu (þ.e. ekki samanlögð efnistaka úr fellunum báðum) – og sé það ekki fellið allt, hvað Eden Mining ætlar sér að gera við „restina“ af fellinu: Eden Mining er með heimild til þess að nýta það allt svo fyrirtækið hlýtur þá að selja öðrum aðilum það sem eftir verður? Mun Eden Mining gera það á sama tíma og Heidelberg Materials er að kaupa 250 þúsund rúmmetra á ári eða eftir að verkefni Heidelbegs lýkur? Eða mun Eden Mining selja Heidelberg allt fellið, bara á lengri tíma en til stóð í upphafi? (Þessi síðasta spurning er sett fram í ljósi þess að á fimmta íbúafundi Heidelberg Materials þann 21. maí sl. gaf Þorsteinn til kynna í svörum að verksmiðjan myndi ekki loka eftir 30 ár.) Eða mun Eden Mining ekki nýta efnistökuleyfið sitt til fulls? Ég spyr þessara spurninga ekki aðeins vegna þess að mér og öðrum er annt um Litla-Sandfell. Ég spyr líka vegna þess að umferðaraukning á Þrengslavegi hefur í för með sér aukna slysahættu og vegagerðar- og viðhaldskostnað. Hvernig umferðaráhrifin verða er stór þáttur í huga íbúa sem munu kjósa um málið. En svo þeir átti sig á því hver væntanleg umhverfi- og umferðaráhrif yrðu í raun og veru þurfa þeir að vita hvort það stendur til að flytja 250 þúsund rúmmetra á ári, eða 500 þúsund rúmmetra á ári, í hve mörg ár, og hvort breytingar yrðu eða gætu orðið á þeim efnisflutningstölum eftir íbúakosninguna. Eða munu fyrirhugaðar framkvæmdir ekki breytast eftir íbúakosningu? Ég biðst afsökunar á því ef um er að ræða einhvern misskilning af minni hálfu. En þá ætti vonandi að vera hægðarleikur að greiða úr honum og það myndi sennilega einnig gagnast mörgum öðrum, því líklega vefjast þessi atriði fyrir fleirum en mér. Með bestu þökkum von um skýr og skilmerkileg svör, Höfundur er félagi í Kirkju sjöunda dags aðventista. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Námuvinnsla Ölfus Mest lesið Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir Skoðun Flott hjá læknum! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Kynþáttahyggja forseta Bandaríkjanna og Grænland Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Skattagrýla lifir Tómas Þór Þórðarson Skoðun Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir Skoðun Getur Samfylkingin leitt breytingar í Reykjavík? Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Fleiprað um finnska leið Rúnar Sigþórsson Skoðun Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen Skoðun 900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Friðjón Friðjónsson Skoðun Ábyrgð og tengslarof Gunnar Dan Wiium Skoðun Skoðun Skoðun Hraðbraut við fjöruna í Kópavogi - Kársnesstígur Ómar Stefánsson skrifar Skoðun Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir skrifar Skoðun Ekki eina ríkisleið í skólamálum, takk! Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Kynþáttahyggja forseta Bandaríkjanna og Grænland Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í landbúnaði – áskorun framtíðarinnar Jódís Helga Káradóttir skrifar Skoðun Orðin innantóm um ársreikning Hveragerðisbæjar Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er okkar Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og lífsgæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Eru bara slæmar fréttir af loftslagsmálum? Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Nýtt byggingarland á Blikastöðum Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun 6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Er B minna en 8? Thelma Rut Haukdal skrifar Skoðun Endurskoðun áfengislöggjafarinnar er verkefni stjórnmálanna Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Skattagrýla lifir Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Fleiprað um finnska leið Rúnar Sigþórsson skrifar Skoðun Og ári síðar er málið enn „í ferli“ Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hverju ertu til í að fórna? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Tvær akgreinar í hvora átt frá Rauðavatni að Markarfljóti Arnar Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Leikskóli er grunnþjónusta, ekki lúxus Örn Arnarson skrifar Skoðun Byggjum á því jákvæða! Ólína Þorleifsdóttir skrifar Skoðun Sundabraut á forsendum Reykvíkinga skrifar Skoðun Endurvekjum Reykjavíkurlistann Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Börnin geta ekki beðið lengur. Hættum að ræða og byrjum að framkvæma Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ég vil Vor til vinstri! Rakel Hildardóttir skrifar Skoðun Styðjum Skúla - í okkar þágu Sindri Freysson skrifar Skoðun Hverfur Gleðigangan? Guðmundur Ingi Þórodsson skrifar Skoðun Samvinna en ekki einangrun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Afnám jafnlaunavottunar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Flott hjá læknum! Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Tökum skrefið lengra í stuðningi við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu og skimum fyrir vellíðan Magnea Marinósdóttir skrifar Sjá meira
-
Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir Skoðun
Skoðun Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir skrifar
Skoðun Orðin innantóm um ársreikning Hveragerðisbæjar Friðrik Sigurbjörnsson,Alda Pálsdóttir skrifar
Skoðun 6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Börnin geta ekki beðið lengur. Hættum að ræða og byrjum að framkvæma Róbert Ragnarsson skrifar
Skoðun Tökum skrefið lengra í stuðningi við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu og skimum fyrir vellíðan Magnea Marinósdóttir skrifar
Er ákveðin stétt sérfræðinga ekki lengur mikilvæg? Sædís Ósk Harðardóttir,Helga Þórey Júlíudóttir Skoðun