„ÁTVR dugar“ Árni Sæberg skrifar 24. maí 2024 10:54 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Vísir/Arnar Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir það skaðlegt samfélaginu að selja áfengi í matvöruverslunum, því áfengi sé engin venjuleg söluvara. Nú þegar sé nægt aðgengi að áfengi með rekstri ÁTVR og markaðssamkeppni óþörf. „ÁTVR dugar.“
Athygli vakti í gær þegar framkvæmdarstjóri Hagkaupa lýsti því yfir að netverslun með áfengi hæfist í verslunum keðjunnar í næsta mánuðu. Viðskiptavinir gætu þannig pantað sér áfengi, rölt um búðina og raðað hefðbundnum vörum í körfu eins og venjulega og sótt svo áfengi í lok búðarferðar. Ljóst er að með þessu verður stigið ansi stórt skref í átt að áfengi í matvöruverslunum. Það þykir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ekki heillavænleg þróun. Í aðsendri grein sem hann ritar á Vísi segir hann að það hafi vart farið fram hjá neinum að verslun með áfengi hafi tekið breytingum á undanförnum misserum og árum, án þess að það hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um það eða farið fram umræða í samfélaginu svo nokkru nemi. Svokallaðar netverslanir, sem flytja inn áfengi hafi skotið upp kollinum og geymi áfengi á lager og selji í smásölu, og bjóði jafnvel upp á heimsendingu á öllum tímum sólarhringsins. „Þessi fyrirtæki fara þannig fram hjá bæði áfengislögum og lýðheilsustefnu stjórnvalda, sem hvoru tveggja leggjast gegn frjálsri smásölu á áfengi. Áfengisauglýsingar hafa einnig tekið að birtast börnum og ungmennum á samfélagsmiðlum, sem er reiðarslag fyrir baráttuna gegn áfengis- og vímuefnanotkun þessa viðkvæma hóps. Hættunni er hreinlega ekið heim að dyrum.“ Hefur ekki farið varhluta af neikvæðum áhrifum áfengis Hann hafi í störfum sínum sem félags- og vinnumarkaðsráðherra ekki farið varhluta af því að sjá neikvæðar félagslegar afleiðingar óhóflegrar áfengisneyslu. Slíkt megi til dæmis sjá innan fjölskyldna þegar neysla eins hefur neikvæð áhrif á aðra og þá sérlega á konur og börn. Ofbeldi í nánum samböndum og vanræksla barna séu dæmi um slíkan skaða. Óhófleg neysla áfengis valdi einstaklingum, fjölskyldum og samfélögum skaða, meðal annars vegna heilsubrests og félagslegra vandamála. Samkvæmt Landlækni hafi kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna áfengisneyslu verið að minnsta kosti hundrað milljarðar króna árið 2021. „Það er því líka eftir miklu að slægjast efnahagslega fyrir samfélagið að draga úr óhóflegri áfengisneyslu. Með minni neyslu og minna aðgengi að áfengi mun auk þess félagslegum vandamálum fækka, slys verða fátíðari, fleiri verða vinnufær, fólki almennt líða betur og opinbert fjármagn sparast. Það eru nefnilega bara seljendurnir sem græða á auknu aðgengi að áfengi, ekki fólkið í landinu, ekki samfélagið.“ Óeining virðist vera meðal ríkisstjórnarinnar Áfengisstefna okkar Íslendinga hafi verið skýr og byggi á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð. Henni sé ætlað að verja félagslega velferð. Stefnan komi meðal annars fram í lögum um verslun með áfengi og tóbak. Rekstur ÁTVR sé hluti þeirrar stefnu og gangi út á að stýra og takmarka aðgengi að áfengi og draga þannig úr skaðlegum áhrifum. Einnig að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis. „Við í Vinstri grænum teljum mikilvægt að víkja ekki frá gildandi áfengisstefnu og gildandi lögum.“ Þessi ummæli ráðherra eru áhugaverð í því ljósi að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem er eins og flestir vita í ríkisstjórn með Vinstri grænum, hafa reglulega talað fyrir auknu aðgengi að áfengi. Þar bera sennilega hæst ummæli Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um hvítvín með humrinum. Þá hefur Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, lagt fram frumvarp um að leyfa netverslanir með áfengi í meira mæli hér á landi. Engin venjuleg söluvara Þá segir Guðmundur Ingi það skaðlegt samfélaginu að selja áfengi í matvöruverslunum, enda sé áfengi engin venjuleg söluvara. Nú þegar sé nægt aðgengi að áfengi með rekstri ÁTVR og markaðssamkeppni óþörf. „ÁTVR dugar.“ Þannig eigi ekki að lögfesta heimild til reksturs innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda. „Ef það er gert stóreykst aðgengið og markaðsöflin fá lausan tauminn til að koma sem mestu áfengi út til neytenda. Við eigum að verja ungmenni og veita þeim frelsi frá ágengum markaðsöflum áfengisiðnaðarins. Velferð fólks á að ganga framar markaðsvæddri netsölu áfengis. Aukið aðgengi að áfengi er skaðlegt samfélagi okkar. Fyrir því eru margvísleg lýðheilsurök. Þetta vitum við. Þetta er ekki mikið flóknara en það.“
Áfengi og tóbak Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Verslun Netverslun með áfengi Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fleiri fréttir Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Sjá meira