Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. maí 2024 19:57 Elvar Már Friðriksson var stigahæsti maður vallarins í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson var stigahæsti maður vallarins er PAOK mátti þola grátlegt þriggja stiga tap í framlengdum leik gegn Panathinaikos í úrslitakeppni gríska körfuboltans í kvöld, 96-99.
Elvar og félagar höfnuðu í áttunda sæti deildarinnar og lentu því á móti deildarmeisturum Panathinaikos í átta liða úrslitum. Því var ljóst að verðugt verkefni biði PAOK. Gestirnir í Panathinaikos höfðu yfirhöndina framan af leik og leiddu með sjö stigum að loknum fyrsta leikhluta. Elvar og félagar sneru taflinu hins vegar við í öðrum leikhluta og leiddu með fimm stigum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 49-44. Í þriðja leikhluta náði liðið mest átta stiga forskoti og mesti munurinn á liðunum var ellefu stig þegar PAOK komst í 79-68 þegar fjórði leikhluti var um það bil hálfnaður. Gestirnir náðu að klóra í bakkann á lokamínútum leiksins og jöfnuðu loks undir lok leiks. Staðan að loknum venjulegum leiktíma 89-89 og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni reyndust gestirnir sterkari og unnu að lokum þriggja stiga sigur, 96-99. Elvar Már var sem áður segir stigahæsti maður vallarins með 25 stig, en hann tók einnig eitt frákast og gaf fimm stoðsendingar.
Mest lesið Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Íslenski boltinn Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Leik lokið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Íslenski boltinn Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Leik lokið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Íslenski boltinn Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Handbolti Fleiri fréttir Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum Sjá meira