Ekki valinn í landsliðið því hann talar ekki spænsku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. mars 2024 13:30 Ben Brereton Díaz fagnar einu sjö marka sinna fyrir síleska landsliðið. getty/Javier Torres-Pool Ben Brereton Díaz, leikmaður Sheffield United, þarf að læra spænsku ef hann vill verða valinn í landslið Síle á nýjan leik.
Díaz var ekki valinn í síleska landsliðið fyrir leiki þess gegn Albaníu og Frakklandi síðar í þessum mánuði. Landsliðsþjálfarinn Ricardo Gareca sagði að takmörkuð færni Díaz í spænsku spili inn í ákvörðunina. Hinn 24 ára Díaz er fæddur í Stoke á Englandi en getur spilað fyrir landslið Síle þar sem móðir hans er frá landinu. Díaz hefur leikið 27 landsleiki fyrir Síle og skorað sjö mörk. Til að leikirnir og mörkin verði fleiri þar hann að gjöra svo vel að læra spænsku. „Ég myndi vilja að hann myndi læra spænsku. Ég held að það sé mikilvægt. Hann var valinn í liðið okkar fyrir Suður-Ameríkukeppnina fyrir tveimur árum og hefur haft nægan tíma til að læra að tala spænsku,“ sagði Gareca. „Þetta er eitthvað sem ég hef sagt honum, að ég vilji að hann tali spænsku. Það er nauðsynlegt upp á samskiptin að gera, við samherja, mig, þjálfarateymið, fólkið og fjölmiðlana.“ Eftir góð ár hjá Blackburn Rovers gekk Díaz í raðir Villarreal síðasta sumar. Hann var svo lánaður til Sheffield United í janúar. Díaz hefur skorað tvö mörk fyrir botnlið ensku úrvalsdeildarinnar síðan hann kom þangað.
Chile Fótbolti Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Fleiri fréttir Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Sjá meira