Fara yfir ótrúlegt afrek LeBron: „Það er ekkert að hægjast á honum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2024 17:45 LeBron James varð um helgina fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að skora yfir 40.000 stig á sínum ferli. Kevork Djansezian/Getty Images Lögmál leiksins verður á sínum stað á Stöð 2 Sport 2 í kvöld þar sem farið verður yfir allt það helsta úr heimi NBA-deildarinnar í körfubolta.
Í þætti kvöldsins verður meðal annars farið yfir ótrúlegt afrek LeBron James sem varð um helgina fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að skora yfir 40.000 stig á sínum ferli. LeBron, sem verður fertugur í lok þessa árs, virðist hvergi nærri hættur og verður spennandi að fylgjast með hversu mörg stig hann endar með þegar skórnir fara að lokum upp í hillu. Alls hefur hann skora 40.017 stig á sínum NBA-ferli, tæplega 2.000 stigum meira en Kareem Abdul-Jabbar sem er næststigahæstur í sögunni. „Ég man þegar maður var að ræða þetta í kringum 2007-2008, er hann að fara að ná Jabbar?“ spyr Tómas Steindórsson í þætti kvöldsins. „Þá þótti manni það óhugsandi. Hann þyrfti að vera með 25 stig að meðaltali í leik þar til hann veðrur fertugur. Það er bara ekki hægt. En hingað erum við komin.“ Sigurður Orri Kristjánsson tók í sama streng og Tómas, en sagði það að vera orðinn stigahæstur í sögunni vera mun stærra afrek en að ná að brjóta 40.000 stiga múrinn. „Það er ekkert að hægjast á honum,“ bætti Tómas þá við og Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi þáttarins, virtist vera sammála honum. „Það kemur kannski aðeins sjaldnar, en þegar hann nær að trekkja líkamann í gang þá er hann bara eimreið. Þetta er algjörlega magnað,“ sagði Kjartan, en brot úr þætti kvöldsins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Fara yfir ótrúlegt afrek LeBron: Það er ekkert að hægjast á honum
NBA Lögmál leiksins Mest lesið Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Enski boltinn New York Knicks vann titil í nótt Körfubolti Karlarnir þremur áratugum á eftir konunum með nýjar reglur Sport Fleiri fréttir Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Sjá meira