Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands - óskað er eftir leiguhúsnæði Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs 5. janúar 2024 15:24 Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi heilsugæslu í Uppsveitum Suðurlands. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu innan starfssvæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Uppsveitum Suðurlands þannig að hún sé heppilega staðsett m.v. aðrar starfsstöðvar heilsugæslna á Suðurlandi. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, sjúkrabifreiðar og næg bílastæði. Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands veitir samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar, heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Því skiptir staðsetning húsnæðisins, þ.e. nálægð við þéttbýli og helstu stofnbrautir, miklu máli við staðarval. Húsrýmisþörf er áætluð um 330 - 380 fermetrar fyrir heilsugæslu. Húsrýmisþörf fyrir íbúð er 40 fermetra. Nánar um aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 9. janúar 2024. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu. Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is. Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. janúar 2024 en svarfrestur er til og með 19. janúar, 2024. Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 31. janúar 2024. Merkja skal tilboðin; nr. 6090220 – Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands – Leiguhúsnæði. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. g. Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fleiri fréttir Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu innan starfssvæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Uppsveitum Suðurlands þannig að hún sé heppilega staðsett m.v. aðrar starfsstöðvar heilsugæslna á Suðurlandi. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi, sjúkrabifreiðar og næg bílastæði. Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands veitir samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu sem grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar, heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Því skiptir staðsetning húsnæðisins, þ.e. nálægð við þéttbýli og helstu stofnbrautir, miklu máli við staðarval. Húsrýmisþörf er áætluð um 330 - 380 fermetrar fyrir heilsugæslu. Húsrýmisþörf fyrir íbúð er 40 fermetra. Nánar um aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 9. janúar 2024. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu. Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is. Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. janúar 2024 en svarfrestur er til og með 19. janúar, 2024. Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 31. janúar 2024. Merkja skal tilboðin; nr. 6090220 – Heilsugæsla í Uppsveitum Suðurlands – Leiguhúsnæði. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. g.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. g.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fleiri fréttir Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira