Með kaldari desembermánuðum frá aldamótum Bjarki Sigurðsson skrifar 3. janúar 2024 21:31 Það var ansi kalt á Íslandi í desember. Vísir/Vilhelm Tíðarfar á Íslandi í desember var yfir heildina litið ágætur, lítið var um úrkomu og var hann hægviðrasamur. Þetta var einn kaldasti desembermánuður þessarar aldar.
Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðarfar í desember árið 2023. Meðalhiti í Reykjavík var -1,2 stig en á Akureyri -4,4 gráður. Kaldast var við Sátu norðan Hofsjökuls, -9,3 gráður, og hlýjast í Surtsey, þrjár gráður. „Desember var kaldur. Þó svo að kuldinn hafi ekki verið í neinni líkingu við kuldatíðina sem ríkti í desember í fyrra, þá var þetta með kaldari desembermánuðum þessara aldar. Meðalhiti var langt undir meðaltali á landinu öllu. Að tiltölu var kaldast inn til landsins á norðanverðu landinu en hlýjast við suðurströndina,“ segir í yfirlitinu. Það var óvenjulega þurrt fram eftir mánuðinum á sunnan og vestanverðu landinu en það bætti í úrkomuna þegar líða tók á mánuðinn. Alhvítir dagar í Reykjavík voru fjórtán í desember og 23 á Akureyri. „Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 27,4 sem er 14,8 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 1,1 sem er rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020,“ segir í yfirlitinu.
Veður Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Fleiri fréttir Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Appelsínugular viðvaranir og yfir 45 metrar á sekúndu á Kjalarnesi Köldu lofti beint til landsins og djúp lægð nálgast Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Sjá meira