Þitt nafn bjargar Justynu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. nóvember 2023 11:59 Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefst í dag. Amnesty segir herferðina hafa breytt lífi þolenda mannréttindabrota frá því henni var komið á fót árið 2001.
Í tilkynningu frá Amnesty segir að krafan um verndun mannréttinda hafi sjaldan verið jafn þörf og núna. „Stríðið í Úkraínu og harðnandi átök fyrir botni Miðjarðarhafs hafa hafa kostað gífurlegan fjölda mannslífa, einkum óbreyttra borgara. Þar á meðal eru fjölmörg börn. Stríðsglæpir hafa verið framdir bæði af hálfu og Hamas og ísraelskra stjórnvalda. Alvarleg brot á alþjóðalögum og fordæmalaus mannúðarneyð á Gaza, knýr mörg okkar til að vilja grípa til aðgerða í þágu mannúðar, mannréttinda og mannlegrar reisnar. Okkur finnst við eflaust vanmáttug frammi fyrir jafn skelfilegum fréttum um mannréttindabrot en við megum ekki láta hugfallast. Við getum kannski ekki gert allt en allir geta gert eitthvað til að gera heiminn örlítið betri. Þegar við tökum höndum saman sem hreyfing þá getum við fært fjöll.“ Mannréttindabaráttan virki Herferðin Þitt nafn bjargar lífi hafi svo sannarlega sýnt að venjulegt fólk geti umbreytt lífi þolenda mannréttindabrota með þeim einfalda hætti að setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda og krefjast umbóta. „Allt frá upphafi herferðarinnar árið 2001 hafa rúmlega hundrað þolendur grófra mannréttindabrota fengið úrbætur á sínum málum. Undirskriftir til stjórnvalda sem fótum troða mannréttindi hafa því oft skipt sköpum í lífi þolenda og gefið öðrum von á erfiðum tímum, sem er ekki síður mikilvægt.“ Cecilia Chimbiri aktívisti frá Simbabve er meðal þeirra. Hún ásamt vinkonum hennar voru árið 2020 pyntaðar og brotið á þeim kynferðislega í heimalandinu. „Mér er svo létt og ég þakka ykkur fyrir stórkostlega herferð. Ég stend í ævarandi þakkarskuld við ykkur. Það er sem þungri byrði hafi verið létt af herðum mér. Mér leið eins og ég væri svo elskuð og mikils metin þegar ég las öll bréfin og kortin,“ segir Chimbiri. Fólk um heim allan hafi látið sig mál hennar og vinkvennanna, Joanah Mamombe og Netsai Marova,varða á síðasta ári í herferðinni og kallað eftir því að ákærur á hendur þeim fyrir mótmæli gagnvart yfirvöldum yrðu felldar niður. Cecillia og Joanah voru sýknaðar í júlí en mál Netsai fór ekki fyrir dómstóla þar sem hún flúði land. „Þetta er aðeins eitt dæmi af mýmörgum um þann góða árangur sem náðst hefur í herferðinni,“ segir í tilkynningu Amesty. Samtakamáttur til sigurs „Samtakamátturinn skiptir máli. Fólk á Íslandi hefur heldur betur lagt sitt lóð á vogarskálarnar með góðri þátttöku í herferðinni. Um er að ræða stærstu mannréttindaherferð í heimi og fer hún fram á aðventunni ár hvert í rúmlega 200 löndum og landsvæðum. Íslandsdeild Amnesty International er afar þakklát öllum þeim fjölmörgu Íslendingum sem lagt hafa herferðinni lið síðustu ár. Þátttakan hefur skipt sköpum enda grípa nærri 2% Íslendinga til aðgerða á hverju ári. Það er mun hærra hlutfall íbúa en nokkur staðar í heiminum.“ Íslandsdeild Amnesty International hefur í gegnum árin vakið athygli á herferðinni með ýmsum hætti. Undanfarin ár hefur Íslandsdeildin fengið til liðs við sig listafólk til að gera vegglistaverk af einu máli þolanda á útivegg á kaffihúsinu Kaffi Vest. „Í ár er engin undantekning þar á og hefur listakonan Julia Mai Linnéa Maria gert glæsilegt listaverk af pólska kvenréttindafrömuðinum Justynu Wydrzyńskasem berst fyrir réttinum til öruggs þungunarrofs í heimalandi sínu,“ segir í tilkynningunni. „Mál Justynu hafði mikil áhrif á mig og mig langar að vinna meira með list sem felur jafnframt í sér mikilvæg skilaboð,“ segir Julia Mai Linnéa Maria um ástæðu þess að hún tók að sér þetta verkefni. Vísað er á heimasíðu Amnesty þar sem hægt er að leggja herferðinni vil í þágu einstaklingar í tíu málum sem eiga það flestir sameiginlegt að hafa glatað frelsi sínu með einum eða öðrum hætti.
Hjálparstarf Simbabve Mest lesið Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Innlent Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Erlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Erlent „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Innlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Innlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Fleiri fréttir Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Lægð sem valdi meiri usla Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Viðvörunarstig hækkað: Auknar líkur á gosi Refsing fyrir að nauðga þroskaskertum manni milduð Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Þingmenn ræða stjórnlausa veðmálastarfsemi: Íslendingar Evrópumeistarar Stórt framfaraskref að færa Blóðbankann í Kringluna Austurstræti orðið að göngugötu Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Dóttirin fær einungis að mæta einu sinni í viku í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Sjá meira