Gíslatökumaður skotinn til bana af lögreglu í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 23. október 2023 06:43 Gíslatökumaðurinn var fluttur særður á háskólasjúkrahúsið í Stafangri þar sem hann var úrskurðaður látinn. Getty Lögregla í Stafangri í Noregi skaut í gærkvöldi karlmann á fimmtugsaldri til bana eftir að sá hafði rænt bíl, tekið ökumanninn í gíslingu og skotið í átt að lögreglu. Lögreglumaður og gíslinn særðust einnig í skotbardaganum.
Norskir fjölmiðlar segja frá því að atvikið hafi átt sér stað um klukkan 22:30 að staðartíma í gærkvöldi. Maðurinn hafði þar ekið bíl sínum og rekist á annan bíl þar sem í voru tveir fullorðnir og tvö börn. Eftir áreksturinn hafi maðurinn, sem var vopnaður, farið inn í annan bíl og tekið ökumanninn í gíslingu. Lögregla hafði svo fljótlega upp á bílnum og veitti honum eftirför. Maðurinn skaut þá úr byssu sinni, út um glugga bílsins og í átt að lögreglu, að því er segir í fréttatilkynningu frá vettvangsstjóra lögreglu í nótt. Lögregla skaut á móti og lauk bardaganum með því að maðurinn, gíslinn og einn lögreglumaður höfðu allir orðið fyrir skoti. Gíslatökumaðurinn var fluttur særður á háskólasjúkrahúsið í Stafangri þar sem hann var úrskurðaður látinn. Fram kemur í frétt NRK að lögreglumaðurinn hafi verið skotinn í bringuna en skotið hafnaði í skotheldu vesti sem hann klæddist svo hann slasaðist ekki. Ennfremur segir að gísl mannsins hafi einnig orðið fyrir skoti, en ekki særst alvarlega.
Noregur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira