„Þetta var einn af mínum verstu leikjum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 20. september 2023 23:01 Andre Onana vonsvikinn í leiknum í kvöld. Vísir/Getty Andre Onana sagði í viðtali eftir leik Manchester United gegn Bayern Munchen í kvöld að byrjun hans í búningi United væri ekki búin að vera góð. Hann átti sök á fyrsta marki Bayern í leiknum.
Manchester United og Bayern Munchen mættust í Meistaradeildinni í kvöld í leik þar sem Bayern hafði betur í miklum markaleik. Fyrsta mark leiksins sem Leroy Sane skoraði fyrir Bayern skrifast algjörlega á Andre Onana markvörð United. Hann missti skotið undir sig og kom Bayern á bragðið. Onana vissi upp á sig sökina eftir leik og óskaði sjálfur eftir því að koma í viðtal hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. „Þetta er erfitt. Við byrjuðum vel en eftir mistökin mín misstum við stjórnina á leiknum. Þetta er erfið staða fyrir okkur, fyrir mig,“ sagði Onana eftir leik. Andre Onana specifically asked to speak to CBS following #mufc's loss to Bayern Munich [@CBSSportsGolazo] pic.twitter.com/klvGBMicDd— utdreport (@utdreport) September 20, 2023 „Liðið lenti undir vegna þessara mistaka. Ég verð að læra af þeim og vera sterkur. Ég er ánægður með hvernig liðið kom til baka.“ Onana hefur ekki byrjað neitt sérstaklega sannfærandi í búningi United. Í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar var hann heppinn að fá ekki á sig vítaspyrnu undir lok leiksins gegn Wolves og í kvöld voru mistök hans dýrkeypt. „Ég hef mikið að sanna. Byrjun mín hjá Manchester United hefur ekki verið sú besta, ekki sú sem ég vildi. Þetta var einn af mínum verstu leikjum. Við erum með háleit markmið. Þetta er erfiður tími og við þurfum að koma saman og leggja hart að okkur.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira