Vatnaskil hjá KR eftir útreiðina á Hlíðarenda Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. júlí 2023 13:00 KR mátti þola niðurlægjandi tap fyrir Val í fyrri leik liðanna. Síðan þá hefur leiðin legið upp á við hjá þeim svörtu og hvítu. vísir/diego Gengi KR tók stakkaskiptum eftir að liðið steinlá fyrir Val, 5-0, í Bestu deild karla í byrjun maí.
KR tekur á móti Val í Bestu deildinni klukkan 19:15 í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast síðan Valsmenn tóku KR-inga í karphúsið 7. maí síðastliðinn. Valur vann leikinn 5-0 en þetta var fjórða tap KR í röð. Eftir það gerði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, breytingar á uppstillingu liðsins sem hafa sannarlega borgað sig. Eftir að hafa spilað með fjögurra manna vörn í upphafi tímabilsins, og nánast alltaf undir stjórn Rúnars, breytti hann yfir í þriggja manna vörn fyrir næsta leik KR, gegn Breiðabliki. Hann tapaðist reyndar, 0-1, en batamerkin á KR-liðinu voru augljós. KR fór í kjölfarið á mikið flug og var ósigrað í átta deildarleikjum í röð og vann auk þess tvo leiki í Mjólkurbikarnum. Alls voru þetta því tíu leikir í röð án taps hjá KR-ingum sem klifu upp töfluna í Bestu deildinni og komust í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Á endanum tapaði KR, fyrir Víkingi í hörkuleik, 1-2, í síðustu umferð. Það var fyrsta tap KR í rúma tvo mánuði. KR-ingar fá svo aftur tækifæri til að komast á beinu brautina í kvöld þegar þeir fá Valsmenn í heimsókn. Leikur KR og Vals hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Besta deild karla KR Valur Mest lesið Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Fleiri fréttir Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Sjá meira