Gylliboð tannlæknastofu Íslensku klíníkarinnar í Búdapest Harpa Lúthersdóttir skrifar 17. maí 2023 11:30 Ég taldi mig hafa dottið í lukkupottinn þegar ég rakst á auglýsingu um ódýrar tannlækningar á lúxushóteli í Búdapest, var ánægð í fyrstu en síðan hefur þessi reynsla snúist uppí hreinustu martröð. Þetta hljómar allt voðalega vel í fyrstu. Nú er staðan þannig að eftir endarlausar einhliða samningsviðræður get ég ekkert gert annað en að vara fólk við stofunni. Ég veit af fullt af fólki sem hefur ekki komið ánægt þaðan og fullt sem er ánægt (ánægt í augnablikinu a.m.k , það veit ekki hvernig er undir öllu þegar uppi er staðið) Það virðist vera að fólk sé hrætt við að segja sögu sína, eins og það skammist sín fyrir allt saman, kannski hefur verið orðið það mikið af skemmdum að það hefur ekki haft efni á að gera við og skammist sín fyrir að hafa valið ódýra leið sem varð svo alls ekki sú ódýrasta , það er oft erfitt að viðurkenna að maður sé jafnel í enn verri málum eftir allt saman. Þessi stofa eins og allar geta gert mistök, það er engin staður eða manneskja í heiminum sem er gallalaus, við skulum ekki gleyma því. Það getur verið að meiri hluti þeirra sem koma frá íslensku klíníkinni sé ánægt, sem er gott og blessað. En það sem mér þykir óeðlilegt er að þegar aðili, eins og ég, kem fram og segji frá í hverju ég lenti þá kemur ánægða fólkið til að sparka í mig. Ég skil ekki þessa hugsun, ég get verið óánægð þótt þessi eða hinn sé það og ég á rétt á mínum bótum þótt að „þið hjónin hafið komið þaðan út brosandi útað eyrum“. Þá er það að máli málanna..... í mjög stuttu máli. Ég kaupi hjá þeim krónur á allar tennur í efri góm. Það eru 14 krónur. Mistökin eru mörg, en við förum bara yfir það stærsta í þessari grein. Í ljós kemur að tvær framtennur hafa ekki verið nægilega vel límdar og bil er á milli krónu og rótar þannig að stingandi taugaverkur kom ef eitthvað fór þar á milli. Ég er ferjuð út á þeirra kostnað, stuttu eftir að ég kem heim brotnar framtönnin af í heilu lagi, þá er komið covid og smá bið í að ég komist út í viðgerð. Ég er aftur ferjuð út á þeirra kostnað og tönnin fest við næstu tönn (sem er óviðurkennd aðferð þar sem tönn sem er dauð og stökk hefur ekki sömu hreyfigetu og lifandi tönn, svo álagið verður skakkt, það getur snúist uppá hana, það þarf að festa hana a milli tveggja tanna). Þannig að tæplega ári eftir að ég kem heim, þá brotnar hún aftur! Ég hef samband út og mér er sagt að koma mér út fyrir ákveðin tíma því ábyrgðin hjá mér sé í það mund að renna út. Lítið mál, ég kaupi mér miða, bóka hótel og kem mér út, vonaði að sjálfsögðu að þetta væri seinasta skiptið sem þetta yrði lagað. Þegar ég er komin út, þá fæ ég skilaboð um að það hafi verið haldinn fundur og ég sé ekki lengur í ábyrgð! Hmmm skrítið, ég vissi ekki að það væri hægt að ákveða það bara á fundi, ég er með fjórfalda skriflega viðurkenningu um annað og ég er komin út til Búdapest. Ég get því ekki annað gert en að fara á aðra stofu og láta laga þetta þar. Þegar tannlæknirinn losar tönnina sem þessi brotna hékk á, kemur í ljós að hún er skemmd og þarf rótarfyllingu. Tönnina margbrotnu þurfti að draga úr, í framhaldinu opnar tannlæknirinn næstu tvær krónur, því á einhverju verða hinar rótarfylltu tennur að festa á, þær voru líka skemmdar og fleiri en bara þær. Í rosalega stuttu máli, þá endar þetta þannig að endanum þurfi að draga tvær tennur og rótarfylla 6stk, þannig 8 tennur af upphaflega 14 hafa verið endurgerðar með tilheyrandi kosnaði og ferðalögum. Þetta þýddi 6tanna brú, 1 implant þar sem ein tönn var, því hún svo skemmd að hún var orðin að graut og ný króna á aðra sem var sýkt en náði að bjarga. Verð að viðurkenna að það er erfitt skref að missa framtennurnar, svo ég skil skömmina. Þá tók næsta martröð við, að reyna að semja við stofuna um endurgreiðslu kosnaðar, það er ekki tekið í mál, því hann segir þetta vera mér sjálfri að kenna. Það er alveg sama hvernig augum ég reyni að skoða þetta, ég get ekki séð hvernig óhreinindi undir krónum séu mér að kenna, ég hef tala við nokkra tannlækna og það er líklegasta skýringin á þessu. Framkoma stofunnar hefur verið með því versta sem ég hef kynnst á ævi minni og virðast gróði vera þeim ofar viðskiptavinum. Ef þú hefur áhuga á að kynna þér málið frekar eða bara sýna mér stuðning með að setja follow á síðuna mína, þá er linkur hér https://www.facebook.com/IslenskaKlinikiniBudapest Ef þú vilt deila slæmri reynslu þinni af stofunni nafnlaust eða undir nafni, endilega sendu mér email harpa@homemade.is Endilega deilið greininni, takk fyrir stuðninginn. Höfundur er öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tannheilsa Mest lesið Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 08.08.26 Halldór The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar