Ibiza norðursins Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar 10. maí 2023 12:30 Mörg kannast við að hafa slett úr klaufunum á suðrænum eyjum einhvern tíma á lífsleiðinni. Færri vilja þó e.t.v. gangast við því. Tónlistin taktföst, bassinn í botni, stemmingin í hámarki. Gamanið tekur þó alltaf enda, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Hversu hátt fallið er að teiti loknu veltur á því hversu hratt við gengum um gleðinnar dyr, hvort við rötuðum hinn gullna meðalveg eða létum kappið bera fegurðina ofurliði, en meðalvegurinn er bæði þröngur og vandrataður – fallið er því oft ívið hærra en upphaflega stóð til. Íslenska þjóðin þekkir þessa rússíbanareið gleðinnar inn og út, þó ekki vegna þess að hún sé sérstakur heimsmetshafi í framúrskarandi skemmtanahaldi, heldur vegna þess að hagstjórn hér á landi hefur lengi vel haft sömu eða svipuð einkenni. Nú þegar stuðið (eða þenslan eins og það er venjulega kallað) í hagkerfinu hefur náð ákveðnum hápunkti, enn á ný, virðist engin breyting ætla að verða þar á. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru, þegar upp er staðið, mennsk eins og við hin og því varla að undra að froðudiskó í öllu stuðinu hafi freistað þeirra. Fjármálaáætlun fyrir árin 2024 til 2028 ber þess skýr merki. Ekki er allt sem sýnist Undanfarin ár hafa verið heldur stormasöm þegar ríkisfjármálin eru annars vegar en nú er útlit fyrir að jafnvægi komist aftur á eftir mikið umrótatímabil sökum heimsfaraldurs. Niðurtúrinn eftir útgjaldaaukningu kóvid-áranna hefur verið bæði langur og erfiður þó nú sé tekið að birta til. Til hins opinbera renna nú töluverðir fjármunir í formi aukinna skatttekna, tekna sem reynast ítrekað langt umfram áætlanir. Samhliða berja freistingar að dyrum ríkissjóðs. Í stað þess að sýna aðhald og styðja við Seðlabankann í baráttunni við verðbólguna hefur hið opinbera fallið í freistni. Óvæntum tekjum er enn á ný varið í ný og aukin útgjöld. Rekstur hins opinbera hefur þrátt fyrir það gengið betur en óttast var við upphaf heimsfaraldurs og halli á rekstri umtalsvert minni en gert var ráð fyrir. Með öðrum orðum, eyðslufylliríið hefur haft í för með sér þynnku þó hún hafi þegar upp var staðið orðið nokkuð skárri en við bjuggumst við. Það er þó ekki vegna þess að hið opinbera hafi sýnt slíka fyrirhyggju, þvert á móti. Þegar þensla er mikil og verðbólga í hæstu hæðum eiga tekjur það til að aukast hraðar en útgjöld sem réttir reksturinn af, en það er yfirleitt einungis tímabundið ástand, sérílagi þegar tekjunum er jafnharðan varið til nýrra varanlegra útgjalda. Þá má með sanni segja að ekki er allt sem sýnist. Enginn er óþrjótandi tekjulind Ef allt gengur samkvæmt plani næst brátt jafnvægi í grunnrekstri ríkisins, þökk sé öllu óvænta tekjustreyminu. Betur má þó ef duga skal, tekjum er nú varið til hinna ýmsu útgjalda þannig að ekki stendur nóg eftir til að greiða vexti af skuldum. Ríkið hefur þurft að slá lán til þess – sannkallaður yfirdráttur á kostnað framtíðarkynslóða – ríkið hefur kosið að eyða um efni fram. Vandséð er að tekjur séu á einhvern hátt ónógar. Síbylja um vannýtta tekjustofna og tapaðar tekjur hins opinbera breyta litlu þar um, tölurnar tala sínu máli. Öllu frekar má ætla að skortur á vilja eða getu til að taka raunverulegar ákvarðanir um aðhald og hagræðingu valdi því að ríkisstjórnin kýs nú að auka álögur á einstaklinga og fyrirtæki með það að markmiði að rétta reksturinn af. Þessi nálgun er ekki forsvaranleg fyrr en tækifæri til að draga úr útgjöldum hafa verið tæmd. Í stað þess að axla ábyrgð á eigin rekstri ganga áætlanir stjórnvalda út á að seilast lengra ofan í vasa þeirra sem verðmætin skapa. Hið opinbera á allt sitt undir velgengni einstaklinga og atvinnulífs. Það ætti því að vera hinu opinbera kappsmál að byggja undir og efla íslenskan efnahag. Ólíklegt er að auknar opinberar álögur skili yfir höfuð auknum tekjum í ríkiskassann þegar upp er staðið, enda koma þær niður á rekstrarumhverfi fyrirtækja og draga úr framtakssemi einstaklinga, en þangað eiga jú tekjur hins opinbera rætur sínar að rekja. Höfundur er hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Efnahagsmál Rekstur hins opinbera Stefanía K. Ásbjörnsdóttir Mest lesið Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar