Tugir látnir eftir eld í gullnámu í Perú Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2023 19:05 Talið er að skammhlaup hafi orðið og í kjölfarið hafi blossað upp mikill eldur í La Esperanza námunni sem er að finna í Arequipa-héraði. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Að minnsta kosti 27 eru látnir eftir að mikill eldur kom upp í gullnámu í Perú í gær. Um er að ræða mannskæðasta námuslysið í landinu í um tvo áratugi.
BBC greinir frá því að talsmenn perúskra yfirvalda segi að tekist hafi að bjarga tveimur námumönnum úr eldinum, en að ekki sé búist við að fleiri í námunni komist lífs af. Talið er að skammhlaup hafi orðið og í kjölfarið hafi blossað upp mikill eldur í La Esperanza námunni sem er að finna í Arequipa-héraði. Perúsk yfirvöld hafa sent tugi sérfræðinga á vettvang til að hægt sé að tryggja námuna, en á myndum má sjá mikinn eld og reyk leggja frá námunni. Talið er að námumennirnir hafi verið að störfum á um hundrað metra dýpi þegar eldurinn kom upp. Náman, sem er í eigu félagsins Yanaquihua, er mjög afskekkt og tók langan tíma fyrir björgunarlið að koma á vettvang. Talið er að um hundrað tonn af gulli séu unnin úr námum í Perú á ári hverju, eða um fjögur prósent af allri gullvinnslu í heiminum.
Perú Námuvinnsla Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira