Sævar Atli og Kolbeinn hetjur Lyngby í mikilvægum sigri Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2023 14:41 Sævar Atli í leik með Lyngby Vísir/Getty Sævar Atli Magnússon reyndist hetja danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby í dag er hann skoraði sigurmarkið í leik liðsins gegn Midtjylland. Vonir Lyngby um að halda sæti sínu í deildinni lifa enn.
Lyngby er að berjast fyrir lífi sínu í dönsku úrvalsdeildinni um þessar mundir en deildin er nú tvískipt þar sem að neðri sex liðin berjast um að sleppa við fall úr deildinni. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og í dag tók liðið á móti efsta liði neðri hlutans, Midtjylland. Tochi Chukwuani kom heimamönnum yfir strax á 2.mínútu leiksins er hann skoraði eftir stoðsendingu frá Kolbeini Finnssyni. Leikmenn Midtjylland náðu hins vegar að svara fyrir sig á 13.mínútu með marki frá Stefan Gartenmann. Á 32.mínútu var röðin hins vegar komin að Sævari Atla Magnússyni en hann kom Lyngby yfir með marki eftir stoðsendingu Lucas Hey. Jafnframt reyndist mark Sævars vera sigurmark leiksins og því þrjú dýrmæt stig í pokann hjá lærisveinum Freys Alexanderssonar. Nú þegar að fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni á Lyngby, sem situr í neðsta sæti deildarinnar, enn möguleika á því að bjarga sér frá falli. Aðeins þrjú stig skilja á milli Lyngby og Horsens sem situr í ellefta og síðasta örugga sæti deildarinnar. Það verður því fróðlegt að fylgjast með þróun mála hjá liðinu á næstu vikum.
Danski boltinn Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ Sport Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Fótbolti Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Handbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Einar tekur við Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Sjá meira