Markasúpa í fyrsta leik dagsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. apríl 2023 13:47 Úr leik dagsins. John Walton/Getty Images Crystal Palace vann West Ham United í stórskemmtilegum leik í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-3 og Palace svo gott sem búið að bjarga sér frá falli.
Bæði lið eru með falldrauginn á hælunum en sigur Palace kemur liðinu upp í 40 stig sem eiga að duga til að halda sæti sínu. Leikur dagsins var eins og lokatölurnar gefa til kynna frábær skemmtun. Fyrsta mark dagsins skoraði Tomáš Souček fyrir Hamrana en þeir voru ekki lengi í paradís. Jordan Ayew jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var liðinn og Wilf Zaha kom heimamönnum yfir fimm mínútum síðar. Tíu mínútum eftir það var staðan orðin 3-1 þökk sé marki Jeffrey Schlupp. Þannig var hún ekki lengi en Michail Antonio jafnaði metin fimm mínútum síðar og staðan 3-2 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var heldur rólegri um miðbik hans fengu heimamenn mjög svo ódýra vítaspyrnu. Eberechi Eze var lítið að pæla í því og skoraði af öryggi. Nayef Aguerd, sem gaf vítaspyrnuna, minnkaði muninn skömmu síðar. Staðan 4-3 og enn nóg eftir. West Ham gerði hvað það gat til að jafna metin en allt kom fyrir ekki og leiknum lauk með 4-3 sigri heimamanna. Roy Hodgson hefur þar með unnið fjóra af þeim sex leikjum sem hann hefur stýrt Palace á leiktíðinni. Palace fer upp í 11. sæti með 40 stig á meðan West Ham er í 15. sæti með 34 stig, fimm stigum frá fallsæti.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira