Íbúar á suðvesturhorninu vakna upp við hvíta jörð Atli Ísleifsson skrifar 27. apríl 2023 07:08 Svona var umhorfs í Laugardal um klukkan sjö í morgun. Vísir/Atli Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á suðvesturhorni landsins hafa vaknað upp við hvíta jörð í morgun. Hressilega snjóaði á sunnanverðu og suðvestanverðu landinu í gærkvöldi og í nótt.
Snjóruðningstæki hafa þannig verið ræst út í höfuðborginni og víðar. Á vef Veðurstofunnar segir að smálægðin hafi ollið þessari snjókomu, en hún heldur sig skammt suðvestur af Reykjanesi í dag og í nótt en svo hverfur hún seint á morgun. Snjómoksturstæki voru ræst út í morgun.Vísir/Atli „Í dag verður norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s en norðaustan 8-13 við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Snjókoma og slydda sunnan- og suðvestantil, dálítil él á Norðausturlandi en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Hiti í kringum frostmark en rétt yfir frostmarki við Suður- og Suðvesturströndina. Svona var staðan á Selfossi í morgun.Vísir/Magnús Hlynur Norðlæg átt 5-13 á morgun, hvassast suðaustan- og norðvestantil. Dregur úr úrkomu suðvestantil í fyrramálið, léttir til síðdegis en bætir í él norðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn, svalast fyrir norðan. Það er útlit fyrir norðlæga átt um helgina, 8-15 m/s fyrir austan og vestast á landinu en annars mun hægari. Bjart að mestu en skýjað og úrkomulítið sunnantil á sunnudag. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðlæg átt 3-10 m/s og dálítil rigning eða snjókoma suðvestantil, annars skýjað og lengst af þurrt. Yfirleitt vægt frost en hiti að 5 stigum yfir daginn sunnanlands. Á laugardag og sunnudag: Norðlæg átt 5-10 en norðvestan 10-15 norðaustanlands. Víða bjart veður, en skýjað og dálítil væta öðru hverju sunnanlands. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Breytileg átt 3-10. Skýjað og dálítil él norðanlands, hiti um eða undir frostmarki. Skýjað með köflum og þurrt, en fer að rigna suðvestantil um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn. Á þriðjudag: Suðaustanátt og víða rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 2 til 7 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt. Dálítil rigning eða súld í flestum landshlutum en úrkomumeira suðaustantil. Hiti 5 til 12 stig.
Veður Reykjavík Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Sjá meira