Hlýtt og rakt loft yfir landinu næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 17. apríl 2023 07:09 Almennt má reikna með fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og hita á bilinu sex til fjórtán stig. Vísir/Vilhelm Suðlægar áttir verða ríkjandi á landinu á næstu dögum með rigningu eða súld og jafnvel þokulofti, enda hlýtt og rakt loft yfir landinu af suðrænum uppruna.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði þó ekki teljandi úrkoma á norðaustanverðu landinu og allar líkur á að sólin láti sjá sig þar nokkuð reglulega í vikunni. Almennt má reikna með fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og hita á bilinu sex til fjórtán stig. „Eftir sumardaginn fyrsta virðist ætla að koma smá bakslag hjá okkur þar sem kalt heimskautloft ætlar að öllum líkindum að ná til okkar. Eins og þetta lítur út núna er um skammvinna norðanátt að ræða og ekki mikil úrkoma sem henni fylgir enda á að myndast hæð yfir landinu næstu helgi. Hins vegar má reikna með að hann frysti fyrir norðan og austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðaustan 5-15 m/s, hvassast vestanlands, en hægari eftir hádegi. Rigning eða súld suðaustanlands. Þurrt að kalla vestan- og norðanlands fyrir hádegi og víða bjart norðan heiða um morguninn, en þykknar upp og væta með köflum eftir hádegi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast norðanlands. Á miðvikudag: Suðlæg átt 3-10 og súld eða dálítil rigning með köflum, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Hæg suðlæg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri. Á föstudag: Snýst í norðlæga átt og kólnar á norðanverðu landinu með dálítilli rigningu, og síðar slyddu eða snjókomu. Dálítil væta suðvestanlands, en bjart suðaustanlands og áfram milt. Á laugardag: Norðlæg átt, stöku él norðaustantil og syðst á landinu, en annars léttskýjað. Kalt í veðri. Á sunnudag: Hægviðri og víða bjart veður. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira