Breytileg átt með rigningu og slyddu víða um land Atli Ísleifsson skrifar 11. apríl 2023 07:15 Hiti verður á bilinu eitt til átta stig á landinu í dag. Vísir/Vilhelm Nú í morgunsárið er lægð við austurströndina sem mun þokast vestur yfir landið í dag. Áttin verður því breytileg, yfirleitt gola eða kaldi, en austan strekkingur norðantil fram eftir degi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning eða slydda með köflum víða um land, og snjókoma til fjalla, en að það stytti smám saman upp á Norður- og Austurlandi. Síðdegis verður áttin orðin suðlæg með skúrum sunnan- og vestantil á landinu, en þurrt og bjart um landið norðaustanvert. Hiti verður á bilinu eitt til átta stig í dag. „Norðan gola eða kaldi á morgun og slydda eða snjókoma með köflum um landið norðanvert, en sums staðar rigning nærri sjávarmáli. Sunnantil á landinu verður hins vegar úrkomulítið. Hiti 0 til 9 stig að deginum, mildast syðst. Annað kvöld styttir síðan upp allvíða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðlæg átt 5-10 m/s og snjókoma eða rigning með köflum, en úrkomulítið sunnantil. Breytileg átt undir kvöld og stöku skúrir eða él. Hiti 1 til 8 yfir daginn, mildast syðst. Á fimmtudag: Austlæg átt 3-10, en 8-15 suðaustantil. Rigning með köflum við suðurströndina, annars yfirleitt þurrt. Hiti 2 til 9 stig að deginum. Á föstudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast sunnantil. Á laugardag: Breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta syðst. Hlýnar heldur. Á sunnudag: Austlæg átt og dálítil rigning með köflum, en þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti 3 til 10 stig. Á mánudag: Suðaustlæg átt og líkur á vætu víða um land. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Fleiri fréttir Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Gular viðvaranir taka gildi Hvessir þegar líður á daginn Spáin fyrir gamlárskvöld að teiknast upp Sjá meira