Webb mældi hitastig á innstu reikistjörnu Trappist Samúel Karl Ólason skrifar 28. mars 2023 10:24 Trappist sólkerfið er „aðeins“ í um fjörutíu ljósára fjarlægð. NASA, ESA, CSA, J. Olmsted (STScI) Hitastigið á dagshlið fjarreikistjörnunnar Trappist-1 b nær um 230 gráðum og gefur það til kynna að ekkert andrúmsloft sé þar að finna. Þetta segja meðlimir alþjóðlegs teymis vísindamanna sem beindu öflugum linsum James Webb geimsjónaukans (JWST) að fjarreikistjörnunni.
JWST var notaður til að greina innrautt ljós frá fjarreikistjörnunni. Hátt hitastig á dagshlið reikistjörnunnar, sem snýr alltaf að stjörnunni, gefur til kynna að hún hafi ekki einhverskonar andrúmsloft sem dreifir hitanum um allan hnöttinn. Þetta er í fyrsta sinn sem ljós frá yfirborði svo smárrar og kaldrar fjarreikistjörnu er greint utan sólkerfis okkar. Á vef Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) segir að um mikilvægt skref í leit að reikistjörnum sem geta borið líf sé að ræða. Hitastig dagshliða reikistjarna borið saman.NASA Trappist-1 b er innsta reikistjarna Trappist sólkerfisins. Stjörnufræðingar opinberuðu tilvist sólkerfisins árið 2017 en þá fundust þar sjö reikistjörnur á stærð við jörðina. Þar af voru þrjár á hinu svokallað lífbelti sólkerfisins, þar sem mögulegt er að finna vatn í fljótandi formi. Trappist-stjarnan er rauður dvergur og allar reikistjörnurnar eru tiltölulega nálægt henni. Allar reikistjörnurnar sex kæmust fyrir innan sporbrautar Merkúr. Fjarlægð Trappist-1 b frá sinni stjörnu er um eitt prósent af fjarlægð jarðarinnar frá sólu en þar sem rauði dvergurinn gefur ekki frá sér jafn mikla geislun og sólin, fær Trappist-1 b ekki nema um fjórum sinnum meiri geislun en jörðin, þó hún sé mun nær. How do you take a planet s temperature? The team measured the change in brightness (in infrared light, or emitted heat energy) when TRAPPIST-1 b moved behind its star. This was a challenge because the star is 1000 times brighter, and the change in brightness was less than 0.1%. pic.twitter.com/8jQWVK4xRL— NASA Webb Telescope (@NASAWebb) March 27, 2023 Ári eftir uppgötvun Trappist var birt rannsókn þar sem fram kom að mögulega væri hægt að finna mikið magn vatns í Trappist-sólkerfinu. Sjá einnig: Trappist-sólkerfið talið ríkt af vatni James Webb er stærsti og besti geimsjónauki sem hefur verið framleiddur og er honum meðal annars ætlað að varpa ljósi á uppruna alheimsins og taka hágæðamyndir af fjarlægum stjörnuþokum. JWST nemur innrautt ljós og þarf hann að vera gífurlega kaldur til að virka rétt og svo geislun frá honum sjálfum trufli ekki skynjara sjónaukans. Upprunalega stóð til að sjónaukinn myndi kosta einn til 3,5 milljarða dala og átti að skjóta honum á loft árið 2010. Honum var skotið á loft árið 2021 og kostaði í heild um tíu milljarða dala.
Geimurinn James Webb-geimsjónaukinn Vísindi Tengdar fréttir Fundu steindaský í lofthjúpi fjarlægrar risareikistjörnu Ský úr sílíkötum eru á meðal þess sem James Webb-geimsjónaukinn fann í lofthjúpi fjarreikistjörnu sem er margfalt stærri en nokkur hnöttur í okkar sólkerfi. Mælingar sjónaukans á reikistjörnunni eru sagðar byltingakenndar. 23. mars 2023 13:53 Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. 14. mars 2023 21:55 Fundu risavetrarbrautir sem reyna á skilning á alheiminum Risavaxin fyrirbæri sem gætu verið tröllvaxnar vetrarbrautir frá bernsku alheimsins gætu reynt á skilning stjarneðlisfræðinga á alheiminum og upphafsárum hans. Vísindamenn sem fundu þau trúðu ekki eigin augum en þeir en bíða enn staðfestingar á uppgötvuninni. 23. febrúar 2023 11:04 Fimmtíu þúsund vetrarbrautir á einni mynd Djúpmynd sem James Webb-geimsjónaukinn tók nýlega skartar um það bil fimmtíu þúsund vetrarbrautum sem eru í milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Myndin er ein sú dýpsta sem sjónaukinn hefur tekið til þessa. 17. febrúar 2023 13:08 Fundu tvær reikistjörnur á lífbelti fjarlægs dvergs Geimvísindamenn hafa fundið tvær reikistjörnur á sem eru á lífbeltinu svokallaða á braut um fjarlæga stjörnu. Báðar reikistjörnurnar eru á stærð við jörðina en ein þeirra fannst árið 2020. 10. janúar 2023 23:12 Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. 22. nóvember 2022 17:04 Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. 11. desember 2021 08:01 Hvað værum við lengi að fara til TRAPPIST-1? Í kílómetrum talið er sólkerfið Í um 369 billjón kílómetra fjarlægð. Það eru 369.000.000.000.000 kílómetrar. 23. febrúar 2017 16:45 Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjá meira
Fundu steindaský í lofthjúpi fjarlægrar risareikistjörnu Ský úr sílíkötum eru á meðal þess sem James Webb-geimsjónaukinn fann í lofthjúpi fjarreikistjörnu sem er margfalt stærri en nokkur hnöttur í okkar sólkerfi. Mælingar sjónaukans á reikistjörnunni eru sagðar byltingakenndar. 23. mars 2023 13:53
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. 14. mars 2023 21:55
Fundu risavetrarbrautir sem reyna á skilning á alheiminum Risavaxin fyrirbæri sem gætu verið tröllvaxnar vetrarbrautir frá bernsku alheimsins gætu reynt á skilning stjarneðlisfræðinga á alheiminum og upphafsárum hans. Vísindamenn sem fundu þau trúðu ekki eigin augum en þeir en bíða enn staðfestingar á uppgötvuninni. 23. febrúar 2023 11:04
Fimmtíu þúsund vetrarbrautir á einni mynd Djúpmynd sem James Webb-geimsjónaukinn tók nýlega skartar um það bil fimmtíu þúsund vetrarbrautum sem eru í milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Myndin er ein sú dýpsta sem sjónaukinn hefur tekið til þessa. 17. febrúar 2023 13:08
Fundu tvær reikistjörnur á lífbelti fjarlægs dvergs Geimvísindamenn hafa fundið tvær reikistjörnur á sem eru á lífbeltinu svokallaða á braut um fjarlæga stjörnu. Báðar reikistjörnurnar eru á stærð við jörðina en ein þeirra fannst árið 2020. 10. janúar 2023 23:12
Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. 22. nóvember 2022 17:04
Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. 11. desember 2021 08:01
Hvað værum við lengi að fara til TRAPPIST-1? Í kílómetrum talið er sólkerfið Í um 369 billjón kílómetra fjarlægð. Það eru 369.000.000.000.000 kílómetrar. 23. febrúar 2017 16:45