„Ein-stærð-fyrir-öll” Sigríður Helga Kárdal Ásgeirsdóttir skrifar 20. mars 2023 07:30 Menntakerfið er ekki réttur staður fyrir stífa ,,ein-stærð-fyrir-öll” umgjörð, heldur þarf það að vera sveigjanlegt eftir ólíkum þörfum stúdenta og tryggja þarf aðgengi fyrir öll. Hagsmuna fjölbreyttrar nemendaflóru í menntakerfinu er ekki fyllilega gætt, sérstaklega erlenda nemendur, foreldra í námi, kynsegin nemendur og fatlað fólk. Háskóli Íslands verður að vera leiðandi hvað varðar inngildandi (e. inclusive) háskólasamfélag. Um það bil 12% stúdenta í Háskóla Íslands eru af erlendu bergi brotnir, og íslenskt samfélag er að verða sífellt fjölbreyttara og alþjóðlegra. Margar námsleiðir í Háskólanum eru hins vegar enn óaðgengilegar fyrir stúdenta sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Inntökuprófið í læknisfræði er eitt margra dæma um illa aðgengilegt nám. Einn hluti prófsins spyr út í almenna þekkingu, en þar eru spurningar um íslenska menningu, sem nemendur sem eru fæddir og/eða uppalnir erlendis eiga erfitt með að svara og ekki er hægt að undirbúa eða læra sérstaklega fyrir þann hluta. Þetta eru spurningar um vinsælt íslenskt tónlistarfólk, barnavísur og sögupersónur úr Íslendingabókunum sem láta erlenda nemendur standa illa að vígi. Á þeim tæplega fjórum árum sem alþjóðafulltrúi hefur verið starfandi á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs er ljóst að þau ýmsu hagsmunamál sem hann hefur beitt sér fyrir snúi helst að þessum efnum. Þess vegna var barátta Röskvu fyrir því að koma á fót stöðu alþjóðafulltrúa á réttindaskrifstofuna gríðarlega mikilvæg. Viðhorfi sem þessu þarf að breyta og Háskóli Íslands verður að þróast í takt við samtímann. Verkefnið Sprettur er mikilvægur liður í því, en það verður ekki síður að kortleggja betur samsetningu á stúdentahópnum með það að markmiði að fá betri tilfinningu fyrir því hvers konar þjónustu ólíkir hópar þurfa. Það er mikil einföldun að öll séu sett undir sama hatt. Röskva í Stúdentaráði hefur þrýst á að skólayfirvöld bæti upplýsingar og tölfræði um nemendur, einkum af erlendum uppruna, með hliðsjón af stefnu Háskóla Íslands (HÍ26). Við í Röskvu viljum að Háskóli Íslands standi fyrir afgerandi aðgerðum og endurskoði núverandi kerfi sem hindrar aðgengi fólks að námi, bæði við inntöku þeirra og á meðan námi þeirra stendur. Jafnræði snýst ekki um að öll fái það sama heldur um að öll komi jöfn að borðinu. Höfundur skipar 1. sæti fyrir Röskvu á Heilbrigðisvísindasviði fyrir kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands, sem fara fram á Uglu 22. og 23. mars. Lesa má meira um áherslur Röskvu hér . “One-size-fits-all” The educational system is not the right place for a rigid “one-size-fits-all” framework. It needs to be adaptable to the needs of students to ensure accessibility for all students. The interests of a diverse student body in the system are not guarded well enough, especially regarding international students, parents, gender-queer students and disabled people. The University of Iceland must be a leading example of an inclusive university community. On campus, roughly 12% of students have international backgrounds and Icelandic society is continuously becoming more diverse. However, there are still many programmes within the university that are inaccessible to students that do not have Icelandic as a first language. The entrance exam into medical studies is one of the many examples of an inaccessible programme. One section of the exam asks about general knowledge that often consists of questions about Icelandic culture which individuals born and/or raised elsewhere have difficulty answering, and one cannot possibly study or prepare specifically for that section. These are questions about popular Icelandic celebrities, nursery rhymes, or characters in children's books that put individuals with international backgrounds at a great disadvantage and it is overt inequality. During the last four years when an International Officer has been working in the Student Rights Office, it is clear that they have been fighting for various student interest affairs, predominantly those concerning the problems stated above. This is why Rösvka’s fight to bring about and implement the position of an International Officer in the Student Rights Office was vital. Views of these sorts need to change and the University has to evolve with the times. The project Sprettur is an important link in this chain, but it is also vital to better map out the composition of student groups, to get a better feel for what kind of services different groups need. It is an over-simplification to assume the same circumstances for everyone. Röskva in the Student Council has put pressure on authorities to increase the quantity and quality of information and statistics of students, especially of international students, in consideration of the policy of the University of Iceland (HÍ26). We in Röskva want the University to stand for decisive action and reevaluate how the current system hinders students’ access both upon entry and throughout their studies. The fight for equality is not about giving everyone the same, but rather is it about providing a level playing field. The author is the first candidate on Röskva’s election list for the School of Health Sciences, for the Student Council elections, which will take place on Ugla March 22nd and 23rd. You can read more about Röskva’s emphasis here. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar