Heiti potturinn bjargaði geðheilsunni og sameinaði fjölskylduna Heitirpottar.is 14. mars 2023 14:53 „Heiti potturinn sameinar fjölskylduna því það er enginn í símanum meðan hann er í pottinum," segir Kristján Berg Ásgeirsson. „Það jafnast fátt á við það að slaka á í heitu vatni eftir góðan göngutúr um hverfið, fjallgöngu eða hjólatúr eða bara eftir erfiðan vinnudag. Það flýtir endurheimt að slaka á í pottinum,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Heitir Pottar.is. En auk þess að mýkja þreytta vöðva segir Kristján nokkrar mínútur í heita pottinum einnig hafa afar jákvæð áhrif á andlegu hliðina. Hann hafi góða reynslu af því sjálfur. „
Það er mikil streita í samfélaginu núna og fólk að glíma við allskonar áhyggjur og lífsstílstengda sjúkdóma. Ég er sjálfur að glíma við kulnun og þurfti að leita mér sálfræðiaðstoðar. Það hefur hjálpað mér mikið að gera meira af því sem mér finnst skemmtilegt, eins og að fara í pottinn í lok dags og slaka á. Kvöldstund í pottinum er ódýrasta sálfræðimeðferðin,“ bætir hann sposkur við. Hann segir heita pottinn einnig hafa góð áhrif á fjölskyldulífið. „Heiti potturinn sameinar fjölskylduna því það er enginn í símanum meðan hann er í pottinum. Það þarf ekki að vera löng stund eða djúpar samræður, bara slaka aðeins á saman í fimmtán mínútur og spjalla um það sem fólk gerði yfir daginn er nóg. Fjölskyldur eru oft svo tvístraðar í dag og allir úti í sínu horni með símann.“ Kristján mælir þess vegna með því að öll fjölskyldan mæti saman í búðina þegar velja á heitan pott svo allir geti sest og mátað. „Þetta eru svo margar mismunandi gerðir, dúpir eða grunnir, með sætum eða sætum og legubekk eða tveimur legubekkjum. Þarfi fólks eru svo mismunandi og mikilvægt að allir séu ánægðir, þetta er fjárfesting í vellíðan,“ segir Kristján. „Ef á að kaupa pott í bústaðinn þá þarf að gera ráð fyrir annarri notkun þar en heima, oft fer öll fjölskyldan plús gestir saman upp í bústað og þá þarf að vera pláss fyrir fleiri í pottinum. Númer eitt, tvö og þrjú er að finna rétta pottinn fyrir hverja fjölskyldu.“ Arctic Spas á heimsklassa Pottarnir sem Kristján selur eru harðkjarna græjur sem þola íslenskar aðstæður, framleiddir í Kanada, þar sem frostið getur farið niður í – 40 gráður margar vikur á ári. Hann mælir með því að fjárfesta í pottum sem standast íslenskar aðstæður. „Arctic Spas er Rolls Roysinn í heitum pottum. Íslenskar aðstæður eru með þeim erfiðustu til að halda hita í heitum pottum, ekki bara vegna frostsins heldur sérstaklega vegna vindkælingarinnar. Arctic Spas eru sterkir og mjög vel einangraðir. Rafmagnseyðsla Arctic Spas er því ekki mikil og rekstrarkostnaður við hann er til að mynda lægri en hitaveitupott þar sem þú þarft öflugan hitara til að halda slíkum potti heitum. Það er hægt að kaupa sér ódýrari pott, framleiddan í heitara loftslagi en þá færðu bara himinháan rafmagnsreikning í staðinn. Við Íslendingar viljum hafa vatnið frekar heitt og erum oft lengi í pottinum í einu. Ég líki þessu oft við muninn á því að sofa í tjaldi og í húsbíl, Það er auðvitað ódýrara að kaupa tjald en einangrunin skiptir öllu máli,“ segir Kristján. Ég hef selt Arcti Spas potta síðan 2006 og þeir hafa reynst mjög vel. Við erum með margar stærðir og gerðir og tvær týpur af klæðningu, annarsvegar viðhaldsfrí plastklæðning og hinsvegar cedrus viður sem hægt er að bæsa. Skeljarnar eru í mörgum litum. Ég hvet fólk til að kíkja til okkar og máta sig við pott,“ segir Kristján.
Heilsa Mest lesið Sindri og Albert selja Skerjafjarðarslotið Lífið Kókaínklásúla í kaupmálanum tryggir Keith rúman milljarð Lífið „Ég er mjög hrædd um að einhver ræni mér“ Lífið Skrýtið næturlíf og ævintýri sem fylgja partýjunum Lífið Veisla fyrir augu og eyru Gagnrýni „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Menning Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Tíska og hönnun „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ Menning „Amma mín, ert þú nokkuð dáin?“ Lífið Var á klóinu þegar skilaboðin bárust og hélt að ferlinum væri lokið Lífið Fleiri fréttir Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira