Odermatt vann aftur gull og Gauti á meðal fimmtíu efstu Sindri Sverrisson skrifar 17. febrúar 2023 16:30 Marco Odermatt glaðbeittur eftir að hafa aftur unnið gullverðlaun á HM. Getty Svisslendingurinn Marco Odermatt bætti við öðrum heimsmeistaratitli á HM í alpagreinum í Frakklandi í dag þegar hann vann sigur í stórsviginu.
Odermatt, sem hafði áður unnið brun, var næstefstur eftir fyrri ferðina í stórsviginu í dag, 58/100 úr sekúndu á eftir Marco Schwarz frá Austurríki. Schwarz dróst hins vegar niður í 3. sæti í seinni ferðinni en Odermatt vann og landi hans, Loic Meillard, fékk silfur eftir að hafa orðið 32/100 úr sekúndu á eftir Odermatt. Odermatt, sem er 25 ára, hafði ekki náð verðlaunasæti í átta tilraunum á heimsmeistaramóti áður en kom að bruninu en er nú búinn að fá tvö HM-gull um hálsinn, eftir að hafa einnig orðið ólympíumeistari í stórsvigi fyrir ári síðan. Hann er yngstur karla til að vinna tvenn gullverðlaun á HM síðan árið 2007 þegar Norðmaðurinn Aksel Lund Svindal vann brun og stórsvig. Gauti Guðmundsson varð í 45. sæti í stórsviginu, af 60 keppendum, samtals rúmum 28 sekúndum á eftir Odermatt. Gauti og Jón Erik Sigurðsson kepptu í undankeppninni í gær en hvorugur þeirra komst í hóp þeirra 25 efstu sem komust beint áfram í aðalkeppnina. Ísland fékk hins vegar úthlutað einu sæti og hlaut Gauti það eftir að hafa verið á undan Jóni Erik í undankeppninni.
Skíðaíþróttir Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Fleiri fréttir Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni slógu best í ár Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Sjá meira