Norðmenn snéru taflinu við og Danir völtuðu yfir Túnis Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. janúar 2023 21:07 Sander Sagosen var markahæstur í liði Norðmanna sem snéru taflinu við gegn Hollendingum í kvöld. Kolektiff Images/DeFodi Images via Getty Images Seinustu leikjum riðlakeppninnar á HM í handbolta lauk í kvöld þegar fjórir leikir fóru fram á sama tíma. Norðmenn unnu góðan endurkomusigur gegn Hollendingum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti F-riðils, 27-26, og Danir fara með fjögur stig í milliriðil eftir öruggan 13 marka sigur gegn Túnis, 34-21.
Norðmenn þurftu svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum er liðið mætti Hollendingum í kvöld. Hollenska liðið var með fjögurra marka forskot þegar flautað var til hálfleiks, 17-13, en Norðmenn snéru taflinu sér í hag í síðari hálfleik og unnu að lokum mikilvægan eins marks sigur, 27-26. Sander Sagosen var eins og svo oft áður markahæstur í liði Norðmanna með sjö mörk, en með sigrinum tryggði norska liðið sér efsta sæti F-riðils. Noregur endar með fullt hús stiga og fer því með fjögur stig í milliriðil, en Hollendingar enda í öðru sæti með fjögur stig og taka tvö þeirra með sér í milliriðilinn. Þá lentu Danir ekki í neinum vandræðum er liðið mætti Túnis á sama tíma þar sem danska liðið vann öruggan 13 marka sigur, 34-21. Danir enda því með fullt hús stiga í H-riðli, en Túnis náði aðeins í eitt stig í leikjunum þremur og endarí fjórða og neðsta sæti. Að lokum unnu Króatar öruggan 12 marka sigur gegn Marokkó í G-riðli og enda með fjögur stig í öðru sæti, líkt og Serbar gera í E-riðli eftir tíu marka sigur gegn Katar.
HM 2023 í handbolta Mest lesið Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Handbolti Fleiri fréttir Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Sjá meira