Tvær útgáfur af hægri vængnum í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2023 14:31 Viggó Kristjánsson var með átta mörk og átta stoðsendingar þegar hann tók við keflinu af Ómari Inga í seinni leiknum. Getty/Marvin Ibo Guengoer Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilaði tvo æfingarleiki á móti Þjóðverjum um helgina og það er ekki hægt að segja annað en að þar hafi breidd íslenska liðsins á hægri vængnum komið í ljós.
Í báðum leikjum var örvhent par í fararbroddi í markaskorun en þetta tvo tvö mismunandi pör. Í sigrinum á laugardaginn voru það Ómar Ingi Magnússon og Óðinn Þór Ríkharðsson sem voru atkvæðamestir. Ómar Ingi var með 5 mörk og 8 stoðsendingar og Óðinn Þór nýtti átta af níu skotum sínum. Ómar átti sjö af átta stoðsendingum sínum á Óðinn. Í tapleiknum í gær voru það aftur á móti Viggó Kristjánsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson sem voru atkvæðamestir. Viggó var með 8 mörk og 8 stoðsendingar og Sigvaldi nýtti átta af níu skotum sínum. Viggó átti sex af átta stoðsendingum sínum á Sigvalda. Ómar Ingi var hvíldur í seinni leiknum en Viggó sýndi að hann er mjög öflugu leikmaður. Fyrir aftan hann bíður svo Kristján Örn Kristjánsson eftir tækifæri sínu. Teitur Örn Einarsson, leikmaður þýska stórliðsins Flensburg og Arnór Snær Óskarsson, einn allra besti leikmaður Olís deildar karla, komust síðan ekki einu sinni í hópinn hjá íslenska liðinu. Sigvaldi byrjaði í fyrri leiknum en klikkaði á þremur fyrstu skotunum sínum og var kallaður á bekkinn. Óðinn kom inn og nýtti tækifæri sitt frábærlega. Eftir átta mörk úr níu skotum í endurkomusigri íslenska liðsins héldu kannski sumir að Óðinn væri langt kominn með að slá Sigvalda út úr byrjunarliðinu en Sigvaldi minnti heldur betur á sig í leiknum í gær.
Landslið karla í handbolta HM 2023 í handbolta Mest lesið Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Íslenski boltinn „Mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ Íslenski boltinn Látinn eftir höfuðhögg í leik Enski boltinn „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ Handbolti „Þetta var bara draumi líkast“ Handbolti Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums Golf „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Handbolti Sjáðu mörkin: Sævar á skotskónum en Giroud með sigurmarkið Fótbolti Dagskráin í dag: Ryder-bikarinn fer af stað Sport Villa vann loksins en Watkins rúinn sjálfstrausti Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Sjá meira