Ógnaði nágranna með skóflu eftir deilur um rutt bílastæði Atli Ísleifsson skrifar 19. desember 2022 06:08 Útkallið í Hafnarfirði kom skömmu fyrir klukkan 18 í gær. Myndin er úr safni. Getty Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna deilna nágranna um bílastæði sem búið var að ryðja við heimili þeirra í hverfinu 221 í Hafnarfirði í gær.
Sagt er frá málinu í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að hjón hafi verið búin að moka snjó úr tveimur bílastæðum við fjölbýlishús í hverfi 221 í Hafnarfirði fyrir einkabíla sína. Þau hafi svo þurft að nota annan bílinn en þegar þau komu aftur hafi nágranni þeirra verið búinn að leggja sínum bíl í stæðið. Kröfðust hjónin þá að bíllinn yrði færður en nágranninn var þó ekki á því. „Snjó hafi þá verið mokað að bifreiðinni þannig að ekki var hægt að komast inn í bifreiðina en nágranninn þá ógnað hjónunum með skóflu,“ segir í dagbók lögreglu, en tilkynning um málið barst skömmu fyrir klukkan 18 í gær. Ók á ljósastaur Um klukkan 20:30 í gærkvöldi var tilkynnt um umferðaróhapp í miðborg Reykjavíkur þar sem bíl hafði verið ekið á ljósastaur. Ökumaðurinn var þar búinn að festa bílinn og komst ekki í burtu. Hann var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis, fíkniefna og lyfja og færður í fangageymslu lögreglu. Þá segir frá því að skömmu fyrir klukkan 23 hafi verið tilkynnt um tjón á bensínstöð í Kópavogi þar sem bíl hafði verið bakkað á bensíndælu.
Lögreglumál Hafnarfjörður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Sjá meira