Mjög kalt og frostið gæti farið niður fyrir tuttugu stig Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2022 08:26 Gera má ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð út næstu viku með frosti á öllu landinu. Vísir/Vilhelm Mjög kalt verður á landinu í dag þar sem algengar frosttölur verða á bilinu sjö til fjórtán stig. Frostið gæti þó orðið undir tuttugu stigum á stöku stað og sé líklegast að það gerist í innsveitum norðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir breytilega átt, þrjá til tíu metra á sekúndu með þurru og björtu veðri nokkuð víða, en sums staðar lítilsháttar él við ströndina. Lægð er nú að myndast og dýpka vestur af landinu og mun hún þokast austur og nálgast síðar í dag. Lægðin sé köld þannig að úrkoma sem henni fylgi verði snjókoma. „Í kvöld má því gera ráð fyrir suðaustan 8-15 með sjókomu á vestanverðu landinu og einnig á Suðurlandi þegar líður nær miðnætti. Á morgun er síðan gert ráð fyrir austan og suðaustan 10-18 m/s og allvíða snjókoma, en styttir smám saman upp seinnipartinn. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él við ströndina. Frost 2 til 15 stig, kaldast norðaustantil. Þó margir hafi verið orðnir langeygir eftir snjónum, þá getur snjókoman skapað erfið akstursskilyrði fyrir ferðalanga. Þeir sem vilja forðast slíkt, ættu því að skipuleggja ferðir eftir veðri. Þegar litið er á spár lengra fram í tímann, þá má gera ráð fyrir áframhaldandi kuldatíð út næstu viku með frosti á öllu landinu. Sá snjór sem hefur fallið síðustu daga og mun falla á næstunni mun því haldast fram að jólum ef kuldaspáin rætist og þar með verða jólin hvít nokkuð víða á landinu. Það breytir því þó ekki að það er snjólétt (lítil snjódýpt) á landinu miðað við árstíma, sérílagi norðan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan og suðaustan 10-18 m/s og víða snjókoma, en úrkomulítið um kvöldið. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él við ströndina. Frost 2 til 15 stig, kaldast norðaustantil. Á sunnudag: Norðaustan 8-15 og dálítil él, en þurrt sunnan- og suðvestanlands. Áfram kalt í veðri. Á mánudag og þriðjudag: Allhvöss eða hvöss norðaustanátt og él um landið norðan- og austanvert. Frost 2 til 10 stig. Á miðvikudag (vetrarsólstöður) og fimmtudag: Norðlæg átt og dálítil él, en þurrt sunnan heiða. Talsvert frost.
Veður Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Sjá meira