Vel heppnað Matvælaþing 2022 Svandís Svavarsdóttir skrifar 28. nóvember 2022 08:31 Á nýliðnu Matvælaþingi sem haldið var í Hörpu 22. nóvember var gerð metnaðarfull tilraun. Undir einu þaki söfnuðust saman fulltrúar allra þeirra hópa sem vinna að framleiðslu, sölu og dreifingu matvæla á Íslandi. Tilgangurinn var að kynna, ræða og rýna nýútkomin drög að matvælastefnu til framtíðar fyrir Ísland. Að auki voru matvæli rædd í alþjóðlegu samhengi. Þau Olga Trofimtseva, fyrrum landbúnaðarráðherra Úkraínu, og Pete Ritchie frá samtökunum Nourish Scotland veittu þinggestum innsýn í þær áskoranir sem blasa við stjórnvöldum og almenningi í Úkraínu og Skotlandi varðandi fæðuöryggi, matvælaöryggi og breytt fæðukerfi. Og það blésu ferskir vindar í pallborðsumræðum þingsins. Ólík sjónarmið fengu að njóta sín þegar rætt var um matvæli í víðu samhengi og útfrá sjónarhóli ólíkra hagsmunaðila. Við freistum þess að búa til stefnu sem samhljómur er um, allar þær athugasemdir og þær skoðanir sem fram komu á þinginu nýtast við áframhaldandi vinnu og mótun matvælastefnu. Samhljómur í áherslum, áleitnar spurningar Það var í senn áhugavert og þakklátt að heyra ákveðna grunntóna sem komu ítrekað upp á þinginu. Sjálfbærni, loftslagsáherslur, sjálfbær fæðukerfi, hringrásarhagkerfið, aukin menntun, nýsköpun. Allt stór hugtök sem heyrðust endurtekin af ólíku fólki í ólíku samhengi. En ákallið um að gleyma ekki okkur sjálfum, hlúa að mennskunni, var einnig sterkt. Það var sameiginleg áhersla fulltrúa eldri og yngri kynslóða. Á Matvælaþingi fjölluðum við um stóru línurnar, grunnstefið sem öll okkar verkefni þurfa að byggja á til að við náum sem mestum árangri. En auðvitað er allt undir, áþreifanleg verkefni sem verið er að fást við í samfélaginu dag frá degi. Saltgerð, íslenskt wasabi, lífræn framleiðsla, dýravelferð, jarðvegur, skólamáltíðir, umbúðir - matarsóun sem er risastór áskorun í okkar samtíma. Ég fékk líka til mín réttmætar og áleitnar spurningar á borð við „Hvernig ætlar þú eiginlega að fá fólk til að vinna í matvælaframleiðslu?“ „Fyrir hverja er regluverkið eiginlega gert?“ Allt eru þetta, og miklu fleiri, atriði sem við nálgumst í Matvælastefnu. Við viljum greina, finna lausnir og marka okkur sjálfbæra stefnu. Myndin er stór og samanstendur af mýmörgum og mikilvægum verkefnum. Á þinginu féllu einnig margar fleygar setningar sem vekja umhugsun. „Hagkerfið þarf að þjóna vistkerfinu en ekki öfugt.“ „Við þurfum að ræða um sjálfbært og heilsusamlegt kerfi.“ Þar var líka rætt um efnahagslegan jöfnuð og möguleika allra til að njóta heilsusamlegs matar. Því það á ekki að vera þannig að það sé bara á færi ríks fólks að borða hollan mat. Eitt af mörgu sem situr eftir í mér eftir vel heppnað Matvælaþing er hversu mikla reynslu, innsæi, þekkingu og hugvit er að finna hér á landi á sviði matvæla. Við erum með mikinn efnivið í höndunum. Við höfum allt sem þarf til viðbótar við orkuna og vatnið. Við höfum hugvit og kjark sem skiptir öllu máli. Nýtt ráðuneyti, ný hugsun Matvælaráðuneytið var ekki síst sett á laggirnar sem viðleitni til að brjóta niður múra sem hafa einkennt íslenska matvælaframleiðslu. Sjávarútvegur og landbúnaður. Frá því þéttbýlismyndun hófst á Íslandi hafa þessar tvær greinar verið burðarásar í fæðu- og hagkerfi okkar, hafa fætt okkur og klætt. En þær hafa einnig lifað sjálfstæðu lífi, hvor fylgt sínum hjólförum. En heimsmyndin er breytt, nýrrar nálgunar og nýrrar hugsunar er þörf. Matvælastefna og Matvælaþing er liður í því. Og ég tel að á Matvælaþingi hafi myndast sprungur í þessa múra. Ég skynjaði mikla ánægju þinggesta með okkar samtal, þá viðleitni okkar að opna gluggann, lofta út og hleypa inn ferskum straumum. Reynslan af þinginu sýnir glögglega að við þurfum að tala meira saman þvert á kerfin. Við þurfum að tefla saman sjávarútvegi, landbúnaði, fiskeldi, vísindum, viðskiptum, nýsköpun og tækni. Og í forgrunn þurfum við að setja hugsunina um neytendur og þá ekki síst neytendur framtíðar. Sú nálgun er okkur nauðsynleg ef við ætlum að ná þeirri forystu sem við viljum vera í á sviði matvælaframleiðslu á Íslandi. Hvað gerist næst? Niðurstöður, hugmyndir og sjónarmið af Matvælaþingi nýtast við þá vinnu sem er framundan við mótun matvælastefnu. Eftir þá vinnu verða drögin sett í samráðsgátt stjórnvalda. Þar verða drögin í fjórar vikur og verður hægt að senda þar inn skriflegar og ítarlegri umsagnir heldur en svigrúmið leyfði á Matvælaþingi. Eftir þann tíma er komið að því að setja saman þingsályktunartillögu sem ég mun bera undir Alþingi í framhaldinu. Síðan verður annað opið umsagnarferli á vegum þingsins. Það er því langt ferli framundan, enda mikilvægt að vanda til verka við svo mikilvægt mál. Ekki síður mikilvægt er að ferlið er opið og gagnsætt og allir geta tekið þátt. Enda eru matvæli hagsmunamál okkar allra, ekki síst komandi kynslóða. Höfundur er matvælaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Svandís Svavarsdóttir Matvælaframleiðsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Landbúnaður Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar