Ólafur hafði betur í Íslendingaslag | Daníel og félagar juku forskotið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. nóvember 2022 20:00 Ólafur Guðmundsson og félagar hans í Zürich unnu sterkan sigur gegn toppliði Kadetten í kvöld. EPA/ANDREAS HILLERGREN Ólafur Guðmundsson og félagar hans í Zürich unnu sterkan tveggja marka sigur er liðið tók á móti svissnesku meisturunum í Íslendingaliði Kadetten Schaffhausen í kvöld, 31-29. Þá eru Daníel Þór Ingason og félagar hans í HBW Balingen-Weilstetten nú með sex stiga forskot á toppi þýsku B-deildarinnar eftir sex marka sigur gegn Konstanz, 36-30.
Fyrir leik liðanna var Íslendingalið Kadetten, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar og með Óðinn Þór Ríkharðsson innanborðs, á toppi svissnesku deildarinnar, en Ólafur og félagar sátu í fjórða sæti. Heimamenn í Zürich voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja. Gestirnir í Kadetten náðu ekki að brúa bilið í síðari hálfleik og Zürich vann að lokum sterkan tveggja marka sigur, 29-31. Kadetten situr enn á toppi deildarinnar með 27 stig eftir 17 leiki, átta stigum meira en Zürich sem þó hefur leikið tveimur leikjum minna. Þá eru Daníel Þór Ingason og félagar hans í Balingen enn taplausir í þýsku B-deildinni eftir öruggan sex marka sigur gegn Konstanz, 36-30. Liðið er með 25 stig eftir 13 leiki, sex stigum meira en Eisenach sem situr í öðru sæti. Að lokum var Haukur Þrastarson í liði Kielce er pólsku meistararnir unnu enn einu sinni heima fyrir. Kielce trónir á toppi pólsku deildarinnar með 33 stig af 33 mögulegum og liðið hefur ekki tapað deildarleik síðan 9. október 2019.
Handbolti Þýski handboltinn Pólski handboltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Sjá meira