„Lýsa á átakanlegan hátt baráttu sjúklingsins“ Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 20. nóvember 2022 21:00 Ólafur Ragnar á Arctic circle ráðstefnunni fyrr í haust. Vísir/Vilhelm Svanhildarstofa var opnuð í dag við hátíðlega athöfn á Hælinu, setri um sögu berklanna á Kristnesi. Stofan er opnuð til minningar um Svanhildi Ólafsdóttur Hjartar, móður fyrrverandi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann segir stundina mikilvæga fyrir sig og fjölskylduna.
Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar glímdi við berkla meirihluta ævi sinnar og er stofan opnuð henni til heiðurs. Í nýja rýminu verða til sýnis upplýsingar og gripir sem tengjast sögu Svanhildar. Ólafur Ragnar flutti á opnuninni ávarp og las upp úr nýútkominni bók sinni sem ber titilinn „Bréfin hennar mömmu.“ Aðspurður hvaða þýðingu opnun stofunnar hefur fyrir hann segir Ólafur Ragnar hana vekja upp minningar um langa baráttu móður sinnar við berkla. „Hún var í sveit þúsunda íslenskra kvenna sem að fyrri hluta síðustu aldar háðu harða glímu við berklana. Margar dóu mjög ungar því að berklarnir herjuðu einkum á yngri konur. Þegar var ákveðið að stofna þetta merkilega safn á Kristnesi um berklana þá þótti mér nú vænt um það og sérstaklega þá ákvörðun að nefna hluta safnsins eftir móður minni og minnast þannig baráttu hennar við þessa miklu farsótt,“ segir Ólafur Ragnar í samtali við fréttastofu. Snertir viðkvæma strengi Hann nefnir að við höfum nú öll reynslu af farsóttum eftir kórónuveirufaraldurinn en berklarnir hafi verið mikið skæðari og hörmulegri. Þúsundir Íslendinga hafi látið lífið en þegar lækning fannst við sjúkdómnum hafi þjóðin virst ákveðið að gleyma farsóttinni. „Þannig að þetta merkilega safn á Kristnesi er eiginlega fyrsta hugvekjan til þess að minna okkur á þessa miklu baráttu og fyrir mig persónulega þá snertir það viðkvæma strengi í mínu brjósti að opna þessa stofu til þess að minnast þessarar miklu baráttu mömmu sem að ég auðvitað kynntist sem ungur drengur,“ segir Ólafur Ragnar. Ólafur Ragnar segist hafa verið sendur í fóstur til afa síns og ömmu á Þingeyri í sjö ár vegna veikinda móður sinnar. Hún hafi árum saman verið á Vífilsstaðahæli og Kristneshæli ásamt því að dvelja á sjúkrahúsinu á Akureyri, án þess að sjá barnið sitt oftar en í örfá skipti. „Það hafa sagt mér konur sem voru með henni á sjúkrastofu að hún hafi horft á myndina af mér, sem var á borðinu við sjúkrarúmið á hverju kvöldi. Þannig að þetta verður mikilvæg stund fyrir mig og fyrir okkur í fjölskyldunni,“ segir Ólafur Ragnar. „Nístandi frásögn“ Þá verði stundin einnig sérstök fyrir þau í ljósi bréfanna sem móðir hans skrifaði á meðan dvöl hennar á hælunum stóð. Bréfin fundust fyrir slysni í blárri málmtösku sem hafði fylgt fjölskyldunni í áratugi en aldrei verið opnuð. Töskuna hafði Ólafur Ragnar sent til Þjóðskjalasafnsins ásamt öðrum skjölum þegar hann lét af embætti sem forseti Íslands og fundust bréfin þá. „Þau lýsa á átakanlegan hátt baráttu sjúklingsins. Að því leyti má segja að saga móður minnar sé í raun og veru vitnisburður um sögu þjóðar og þessa þúsunda kvenna. Sérstaklega ungra kvenna sem háðu baráttu við berklana á fyrri hluta síðustu aldar og er nístandi frásögn og eiginlega lærdómsrík fyrir okkur á þessum tímum. Þess vegna ákvað ég að gefa þessi bréf út, þó að þau kannski fyrst og fremst skipti máli fyrir okkur í fjölskyldunni þá eru þau um leið þjóðarsaga og lestur sem getur veitt nýjum kynslóðum innsýn í þessa hræðilegu baráttu þjóðarinnar á æskuárum mínum,“ segir Ólafur Ragnar. Hrein tilviljun að bréfin fundust Hann segir fund bréfanna vera hreina tilviljun en þau hafi veitt sér nýja sýn á líf foreldra sinna. „Þegar ég fór á Þjóðskjalasafnið fyrir rúmu ári síðan, að nálgast áttrætt og fór að lesa þessi bréf í fyrsta sinn þá allt í einu opnaðist mér ný sýn á líf foreldra minna. Til dæmis það sem ég vissi ekki að þegar þau giftu sig árið 1939 á Þingeyri, þá var mamma orðið veik á ný þannig hún var í rúminu þegar þau giftu sig. Presturinn kom heim og hún gat ekki farið með pabba til Ísafjarðar heldur var send á Vífilsstaði þar sem hún var í rúmt ár þannig að þau gátu ekki einu sinni búið saman á fyrstu árum hjónabandsins vegna þess að hún var alltaf á hælum,“ segir Ólafur Ragnar. Hann bætir því við að mikil einvera hafi fylgt sjúkdómnum fyrir berklasjúklingana. Þeir hafi jafnvel þurft að vera árum saman frá ástvinum og fjölskyldu. „Þess vegna voru Vífilsstaðir og Kristneshæli byggð fjarri mannabyggð á sínum tíma. Þetta voru í reynd einskonar fangelsi hinna sjúku vegna þess að það vildi enginn vera innan um berklasjúklingana af ótta við smit,“ segir Ólafur Ragnar að lokum.
Ólafur Ragnar Grímsson Eyjafjarðarsveit Söfn Mest lesið „Að vera ættleidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjölskyldan mín höfum fengið“ Lífið „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ Lífið Þórbergur og Laxness í ruslinu Lífið Krakkatía vikunnar: Nói, bófi og starfsmaðurinn Snjói Lífið Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið Falinn gjóður vann Músíktilraunir Tónlist Áhrifavaldurinn Clavicular handtekinn Lífið Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Lífið Fréttatía vikunnar: Raðvændiskaupandi og baráttan við verðbólgudrauginn Lífið Back to the Future-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þórbergur og Laxness í ruslinu „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ „Að vera ættleidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjölskyldan mín höfum fengið“ Krakkatía vikunnar: Nói, bófi og starfsmaðurinn Snjói Áhrifavaldurinn Clavicular handtekinn Back to the Future-leikari látinn Fréttatía vikunnar: Raðvændiskaupandi og baráttan við verðbólgudrauginn Birnir á plötu ársins Laufey Lín söngkona ársins Engdust um af sársauka í túrverkjaherminum Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Kanóna frá Írlandi gestur í fyrsta hlaðvarpsþættinum Fall Vals í Afríku ætlar að reynast dýrkeypt Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Baldur og Einar komnir með hnausþykkt hár eftir hárígræðsluna Kaleo efnir til tónleikaveislu á Þingvöllum í júní Lætur skemmdaverk á vegglistinni ekki stöðva sig og heldur út Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Barnsmóðir og dætur Eyjólfs fluttar til Íslands Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Hvað veistu um… IKEA? Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Rihanna stóð á milli Péturs og þriggja milljóna Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Nýjasti spennutryllir Hildar Knúts gerður að kvikmynd Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Sjá meira
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Lífið