Brynjólfur Andersen á skotskónum og Sveindís Jane enn með fullt hús stiga Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. október 2022 22:31 Brynjólfur Andersen steig upp í dag. Kristiansund Brynjólfur Andersen Willumsson skoraði og lagði upp í stórsigri Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurinn heldur vonum liðsins um að halda sæti sínu í deildinni á lífi. Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru enn með fullt hús stiga í Þýskalandi.
Kristiansund heldur í vonina um að halda sæti sínu í norsku úrvalsdeildinni eftir 4-0 sigur á Álasund í dag. Brynjólfur Andersen átti frábæran leik þar sem hann skoraði annað mark liðsins úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og lagði svo upp fjórða markið undir lok leiks. Brynjólfur Andersen fékk heiðursskiptingu í uppbótartíma. Kristiansund er með 21 stig, tveimur stigum frá umspilssæti um sæti í efstu deild, þegar tvær umferðir eru eftir. Alfons Sampsted spilaði allan leikinn þegar Bodø/Glimt tapaði 3-2 fyrir Rosenborg. Kristall Máni Ingason var á bekk sigurliðsins. Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson spilaði allan leikinn þegar Viking steinlá 4-1 gegn Noregsmeisturum Molde. Wolfsburg enn með fullt hús stiga Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði hálftíma í 3-2 útisigri Wolfsburg á Werder Bremen. Wolfsburg var 3-1 yfir þegar hún kom inn af bekknum, heimaliðið minnkaði muninn en náði ekki að jafna metin. Wolfsburg er áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Glódís Perla Viggósdóttir var í hjarta varnar Bayern München sem vann 3-1 sigur á Meppen. Bayern er fimm stigum á eftir meistaraliði Wolfsburg þegar aðeins sex umferðir eru búnar af deildinni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir voru ekki í leikmannahópi Bayern. Hlín Eiríksdóttir skoraði sárabótamark fyrir Piteå þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Vittsjö. Markið kom á sjöundu mínútu uppbótartíma. Piteå er í 8. sæti með 37 stig að loknum 25 leikjum.
Fótbolti Norski boltinn Sænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Fyrsta jafntefli Real Madrid Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira