Elvar skoraði tvö er Melsungen komst aftur á sigurbraut | Viggó markahæstur í tapi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. október 2022 15:49 Elvar Örn Jónsson skoraði tvö fyhrir Melsungen í dag. Florian Pohl/City-Press via Getty Images Íslendingalið Melsungen vann langþráðan sigur er liðið tók á móti Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 21-19. Þá var Viggó Kristjánsson markahæsti maður vallarins er Leipzig tapaði gegn Füchse Berlin, 26-31.
Leikur Melsungen og Wetzlar var jafn og spennandi frá upphafi til enda, en heimamenn í Melsungen höfðu þó yfirhöndina stærstan hluta leiksins. Liðið leiddi með einu til tveimur mörkum nánast allan fyrri hálfleikinn og fór með eins marks forskot inn í hálfleikshléið, staðan 11-10. Gestirnir í Wetzlar náðu þó forystunni snemma í síðari hálfleik og héldu henni alveg þar til heimamenn jöfnuðu í 18-18. Melsungen náði mest þriggja marka forskoti undir lok leiksins og vann að lokum langþráðan tveggja marka sigur, 21-19. Þetta var aðeins annar sigur liðsins á tímabilinu og Melsungen situr nú í tíunda sæti deildarinnar með sex stig eftir átta leiki, einu stigi meira en Wetzlar sem situr sæti neðar. Þá máttu Viggó Kristjánsson og félagar hans í Leipzig þola fimm marka tap er liðið tók á móti Füchse Berlin, 26-31. Viggó var markahæsti maður vallarins með átta mörk, en Leipzig situr í 16. sæti deildarinnar með fjögur stig á meðan Füchse Berlin hirti toppsætið með sigrinum í dag. Að lokum skoruðu Hákon Daði Styrmisson og Elliði Snær Viðarsson sitthvort markið er Gummersbach tapaði gegn Hamburg, 34-31.
Þýski handboltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Fleiri fréttir Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Sjá meira