Suðvestlæg átt og skúrir um landið vestanvert Atli Ísleifsson skrifar 12. október 2022 07:12 Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til sjö stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðvestlægri átt og skúrum í dag um landið vestanvert, en þurru og björtu veðri á Norðaustur- og Austurlandi. Reikna má með að hiti á landinu verði víða á bilinu þrjú til sjö stig.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það bæti í úrkomu sunnan- og vestanlands um tíma í kvöld. „Víða hæglætisveður á morgun, en allvíða norðaustan kaldi annað kvöld og éljagangur við norðurströndina. Kólnar smám saman. Síðan er útlit fyrir norðlæga átt dagana þar á eftir með ofankomu á köflum fyrir norðan, en lengst af bjart og þurrt veður syðra. Fremur kalt í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en norðaustan 5-13 um kvöldið. Él við norðurströndina, annars yfirleitt þurrt veður og víða bjart sunnan heiða. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn, mildast syðst á landinu. Á föstudag: Norðan 8-15, hvassast við norðurströndina. Snjókoma eða él á norðanverðu landinu, en bjartviðri sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á laugardag: Gengur í norðaustan og norðan 10-18. Snjókoma eða slydda norðanlands, en rigning með austurströndinni. Þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Norðan 8-15. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir um kvöldið. Frost 0 til 4 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað vestanlands og hlýnar þar, en léttskýjað annars staðar og fremur kalt í veðri.
Veður Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Fleiri fréttir Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Éljagangur og slabb í kortunum Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Ekkert lát á austlægum áttum Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Áfram austanátt og kólnar í kvöld Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Hvassast við suðurströndina Má búast við skúrum eða éljum Víðast úrkomulítið en skúrir og slydduél austantil Mildri austanátt beint til landsins Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Sjá meira