Þjóðverjar í undanúrslit eftir öruggan sigur gegn Grikkjum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. september 2022 20:38 Dennis Schröder var stigahæstur í liði Þjóðverja í kvöld. Stache/picture alliance via Getty Images Þjóðverjar eru komnir í undaúrslit Evrópumóts karla í körfubolta eftir öruggan ellefu stiga sigur gegn Grikkjum í kvöld, 107-96.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og Þjóðverjar leiddu með fjórum stigum að loknum fyrsta leikhluta. Grikkir snéru taflinu þó við í öðrum leikhluta og náðu fjögurra stiga forskoti áður en flutað var til hálfleiks, staðan 57-61, Grikkjum í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Þjóðverjar mættu hins vegar ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og má segja að liðið hafi tekið öll völd. Þeir þýsku skoruðu 26 stig í þriðja leikhluta gegn aðeins tíu stigum Grikkja og staðan því orðin 83-71, Þjóðverjum í vil, fyrir lokaleikhlutann. Þjóðverjar héldu áfram að þjarma að Grikkjum framan af í fjórða leikhluta og náðu mest 22 stiga forskoti. Grikkir náðu þó að klóra í bakkann undir lokin, en skaðinn var skeður og niðurstaðan því ellefu stiga sigur Þjóðverja, 107-96. Dennis Schroder var stigahæstur í liði Þjóðverja með 26 stig, en hann tók einnig þrjú fráköst og gaf átta stoðsendingar. Giannis Antetokounmpo var eins og svo oft áður atkvæðamestur í liði Grikkja með 31 stig, sjö fráköst og átta stoðsendingar. Þjóðverjar eru því á leið í undanúrslit Evrópumótsins þar sem liðið mætir Spánverjum. Enn eru tvær viðureignir eftir í átta liða úrslitum þar sem Slóvenar mæta Pólverjum og Frakkar mæta Ítölum.
Körfubolti EuroBasket 2022 Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Fleiri fréttir Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Sjá meira