Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 14. júlí 2022 07:34 Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Útlit er fyrir vestlæga átt vestantil en hæga norðlæga átt austantil á landinu í dag. Síst er útlit fyrir skúri á Suðurlandi en þó víða annarsstaðar. Hámarkshiti gæti náð 18 stigum suðaustan til og milt veður er á öllu landinu. Þegar kvölda tekur nálgast lægð úr suðvestri og hvessir sunnan og vestan til í fyrramálið.
Annað kvöld má gera ráð fyrir suðaustan 10 til 15 metrum á sekúndu við suðurströndina og rigningu sunnan- og vestanlands, sem og á hálendinu. Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða hvort sem um þá sem eru fótgangandi eða með hjólhýsi í eftirdragi er að ræða. Veðrið verður heldur minna norðan og austan til, þó má einnig búast við rigningu þar aðfaranótt laugardags. Áframhaldandi suðlæg átt og skúrir eru í kortunum á laugardag en á sunnudag styttir upp að mestu sunnantil en útlit er fyrir vætu, að minnsta kosti fyrripart dags, norðanlands. Almennt er milt loft yfir landinu og hiti víða 10 til 16 stig yfir daginn. Veðurhorfur á landinu næstu daga Föstudagur Suðlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu og bjart með köflum norðan og austan til en vaxandi suðaustan átt suðvestan til, 8 til 15 metrar á sekúndu, þykknar upp og fer að rigna þar eftir hádegi. Hiti 10 til 17 stig hlýjast norðanlands. Laugardagur Suðaustlæg átt, 5 til 13 metrar á sekúndu og rigning suðaustan til annars víða skúrir. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Sunnudagur Vestan 5 til13 metrar á sekúndu. Dálítil væta sunnan jökla fyrir hádegi en skúrir eða rigning um landið norðanvert. Léttir til syðra eftir hádegi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðaustan til. Mánudagur Hæg suðaustlæg eða breytileg átt og bjart með köflum en snýst í suðaustan 5 til 10 suðvestan til um kvöldið með lítlsháttar úrkomu. Hiti 10 til 15 stig. Þriðjudagur og miðvikudagur Útlit fyrir breytileg átt með dálítilli vætu í flestum landshlutum. Hiti 8 til 15 stig. Nánari upplýsingar um veðurfar má finna á vef Veðurstofunnar.
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira