Í fyrsta sinn hægt að fá klippingu á fótboltaleik í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 24. júní 2022 08:30 Ægir Líndal og Gunnar Malmquist munu sjá um að klippa fólk sem vill nýta sér það á meðan að það horfir á mikilvægan leik Aftureldingar og Þórs. Ægir sér meðal annars um hár Mosfellsingsins Ísaks Snæs Þorvaldssonar sem er markahæstur í Bestu deildinni. @aftureldingknattspyrna/@aegirlindal Knattspyrnudeild Aftureldingar býður upp á skemmtilega nýjung á leiknum við Þór í Mosfellsbæ í kvöld. Hægt verður að fá klippingu á meðan á leik stendur.
Áhugasamir þurfa reyndar að panta tíma fyrir fram en fá fyrir 8.000 krónur bæði klippingu og miða á leikinn, sem og drykk til að dreypa á yfir leiknum. Það eru engir aukvisar sem verða með rakvélina á lofti því þeir sem sjá um að klippa eru þeir Gunnar Malmquist Þórsson, leikmaður handknattleiksliðs Aftureldingar, og Ægir Líndal sem meðal annars sér um hár markahæsta leikmanns Bestu deildarinnar, Ísaks Snæs Þorvaldssonar. Gunnar og Ægir starfa báðir á Studio 110. View this post on Instagram A post shared by Afturelding Knattspyrnudeild (@aftureldingknattspyrna) Rétt er að taka fram að panta þarf klippingu fyrir fram, með því að senda skilaboð á @aftureldingknattspyrna, @vikingblendz eða @lindalcutz á Instagram. Afturelding er enn í leit að sínum fyrsta heimasigri í Lengjudeildinni í sumar og mikið er undir í leiknum gegn Þór því aðeins eitt stig skilur liðin að, í 9. og 10. sæti deildarinnar. Afturelding er ofar, með sex stig eftir sjö leiki en aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Lengjudeild karla Afturelding Fótbolti Mosfellsbær Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Grindavík - Stjarnan | Fyrsti titillinn í tólf ár? Körfubolti Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Fleiri fréttir David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Sjá meira