Man City og Liverpool berjast um miðjumann Leeds Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. júní 2022 16:31 Kalvin Phillips er eftirsóttur. EPA-EFE/FACUNDO ARRIZABALAGA Það virðist sem tvö bestu lið Englands séu á höttunum á eftir enska landsliðsmanninum Kalvin Phillips sem leikur með Leeds United.
Samkvæmt mánudagsslúðri Sky Sports ætlar Jürgen Klopp að veita Pep Guardiola samkeppni í kapphlaupinu um hinn 26 ára gamla varnartengilið. Phillips var frábær er Leeds United komst upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik tímabilið 2020/2021. Hann lék í kjölfarið einkar vel með enska landsliðinu á EM og vakti athygli stærri liða. Talið var að Manchester United vildi fá hann í sínar raðir en fjandskapur Leeds og Man Utd gerði það að verkum að þau vistaskipti voru aldrei líkleg. Phillips var mikið meiddur í vetur og kom aðeins við sögu í 20 deildarleikjum hjá Leeds sem rétt slapp við fall. Það virðist ekki sem meiðslahrjáð tímabil komi í veg fyrir áhuga tveggja af bestu liða Evrópu. Pep vill fá Phillips til Englandsmeistara Man City þar sem Brasilíumaðurinn Fernandinho er á leið til heimalandsins frá árinu 2013. Klopp vill Phillips til að auka breiddina á miðsvæði Liverpool. Phillips á tvö ár eftir af samningi sínum við Leeds og ljóst að hann mun ekki vera seldur ódýrt. Hvað þá þegar tvö stórlið vilja bæði fá leikmanninn.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Býst núna við því versta frá áhorfendum Sport Gleymdi Íslendingurinn fékk loks að spila: „Ég er ekki vitlaus“ Fótbolti Fótboltaþjálfari og þrjú börn hans létust í jólafríinu Fótbolti Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport Jokic lá þjáður eftir og tímabilið í hættu Körfubolti „Þetta er skrýtið fyrir alla“ Sport „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport Arnar vill læra af mistökum gullkynslóðarinnar og gera landsliðið sjálfbærara Fótbolti Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara Enski boltinn Fleiri fréttir Liðið sem gerir stólpagrín að xG Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Sjá meira