Hörður Björgvin mögulega á leið aftur til Englands Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. maí 2022 11:00 Hörður Björgvin í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon gæti verið á leiðinni aftur til Englands eftir að hafa leikið með CSKA Moskvu frá árinu 2018. Tvö ár þar á undan lék hann með Bristol City í ensku B-deildinni.
Hörður Björgvin ku vera á óskalista Sheffield United en félagið var í harðri baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð. Féll það úr leik í vítaspyrnukeppni gegn Nottingham Forest sem á endanum vann sér inn sæti í úrvalsdeildinni eftir 23 ára bið. Hörður Björgvin ræddi við Vísi fyrir ekki svo löngu þar sem hann fór meðal annars yfir framtíðarmöguleika sína en hann er samningslaus um þessar mundir. Sheffield United var þekkt fyrir einstakan leikstíl sinn undir stjórn Chris Wilder og hefur Paul Heckingbottom, þjálfara liðsins í dag, haldið nokkurn veginn í þennan sama leikstíl. Liðið spilar nær eingöngu með þriggja manna vörn með miðverði sem eru góðir á boltann. Það verður því að segjast að Hörður Björgvin ætti að passa nokkuð vel þar inn í. Hörður Björgvin ætlar að halda öllum möguleikum opnum og sjá hvað gerist eftir landsleiki Íslands í júnímánuði þar sem liðið mætir Albaníu og Ísrael í Þjóðadeildinni ásamt því að spila vináttuleik við San Marínó. Hinn 29 ára gamli Hörður Björgvin á að baki 38 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim tvö mörk. Þá á hann að baki 37 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Körfubolti Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Fótbolti Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Króatar á HM en draumur Færeyja úti Fótbolti Styrmir sterkur í sigri á Spáni Körfubolti Þungavigtin: Mike hefur miklar áhyggjur af því að KR falli í körfunni Körfubolti Mynd um leið Snæfells að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum Körfubolti Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Fótbolti Kennie Chopart lagði upp sigurmark KR á Hlíðarenda annað árið í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Sjá meira