Hörður Björgvin yfirgefur CSKA Moskvu í sumar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. maí 2022 18:30 Hörður Björgvin í einum af 38 leikjum sínum fyrir íslenska landsliðið. VÍSIR/VILHELM Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon mun yfirgefa CSKA Moskvu í sumar. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum rússneska félagsins.
Hinn 29 ára gamli varnarmaður hefur verið á mála hjá CSKA síðan 2018. Hörður Björgvin sleit hásin vorið 2021 en hefur náð fullum bata og er farinn að spila á nýjan leik. Það breytir því ekki að samningur hans í Moskvu rennur út í sumar og ljóst að varnarmaðurinn knái mun róa á önnur mið. „Hörður Magnússon yfirgefur CSKA. Samningur íslenska varnarmannsins rennur út þegar tímabilinu lýkur. Við viljum þakka honum fyrir þann tíma sem hann hefur leikið í rauð-bláu treyjunni og óskum honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir á samfélagsmiðlum CSKA. # . @HordurM34 , - , ! https://t.co/c8o9te2dlC— (@pfc_cska) May 20, 2022 Hörður Björgvin er uppalinn hjá Fram hér á landi, þaðan lá leiðin til ítalska stórliðsins Juventus. Hann var lánaður til Spezia og Cesena þar í landi áður en hann samdi við Bristol City á Englandi árið 2016 og svo CSKA tveimur árum síðar. Alls á Hörður Björgvin að baki 38 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Í þeim hefur hann skorað tvö mörk, annað var í gríðarlega mikilvægum 1-0 sigri á Króatíu á Laugardalsvelli sumarið 2017.
Fótbolti Rússneski boltinn Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Körfubolti Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Sjá meira