Besta byrjunin síðan að ofurlið KR-inga vann alla leiki sína fyrir 63 árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2022 10:30 Ísak Snær Þorvaldsson fagnar hér sjöunda markinu sínu í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Hulda Margrét Blikar urðu í gær aðeins sjöunda liðið í sögu efstu deildar til að vinna sex fyrstu leiki sína á Íslandsmótinu en það þarf að fara allt aftur til ársins 1959 til að finna lið með betri markatölu. Breiðablik vann 3-0 sigur á Íslandsmeisturum Víkings á útivelli í gær og er því með 18 stig í húsi af 18 mögulegum stigum. Ekkert lið hefur verið með fullt hús og plús fimmtán í markatölu síðan að KR-ingar náðu því sumarið 1959. KR-ingar skoruðu 27 mörk gegn aðeins þremur í fyrstu sex leikjum sínum 1959 en voru þó bara með tólf stig því á þeim árum var þriggja stiga reglan ekki í gildi. KR-liðið frá 1959 er eina liðið í sögunni sem hefur unnið alla deildarleiki sína á sumri frá því að tvöföld umferð var tekin upp. KR-ingar unnu alla tíu leiki sína fyrir 63 árum en markahæstu leikmenn þess liðs voru þeir Þórólfur Beck (16 mörk), Sveinn Jónsson (10 mörk) og Ellert B. Schram (8 mörk). Síðasta liðið á undan Blikum til að vinna fyrstu sex leiki sína var lið FH sumarið 2005 en það FH-liðið var búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn þremur umferðum fyrir lok móts. Sex af þessum sjö liðum urðu Íslandsmeistarar um haustið eða öll lið nem Keflavíkliðið frá 1997. Keflavík vann sex fyrstu leiki sína fyrir 25 árum síðan en síðan aðeins einn af síðustu tólf leikjum síðan sem þýddi að liðið endaði mótið í sjötta sæti. Besta byrjun í fyrstu sex leikjunum í efstu deild: KR 1959 6 sigrar og +24 í markatölu (27-3) Breiðablik 2022 6 sigrar í 6 leikjum og +15 í markatölu (19-4) FH 2005 6 sigrar í 6 leikjum og +14 í markatölu (16-2) Keflavík 1973 6 sigrar í 6 leikjum og +13 í markatölu (15-2) Valur 1978 6 sigrar í 6 leikjum og +12 í markatölu (17-5) ÍA 1995 6 sigrar í 6 leikjum og +10 í markatölu (12-2) Keflavík 1997 6 sigrar í 6 leikjum og +9 í markatölu (11-2) Besta deild karla Breiðablik KR Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Fótbolti Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira
Breiðablik vann 3-0 sigur á Íslandsmeisturum Víkings á útivelli í gær og er því með 18 stig í húsi af 18 mögulegum stigum. Ekkert lið hefur verið með fullt hús og plús fimmtán í markatölu síðan að KR-ingar náðu því sumarið 1959. KR-ingar skoruðu 27 mörk gegn aðeins þremur í fyrstu sex leikjum sínum 1959 en voru þó bara með tólf stig því á þeim árum var þriggja stiga reglan ekki í gildi. KR-liðið frá 1959 er eina liðið í sögunni sem hefur unnið alla deildarleiki sína á sumri frá því að tvöföld umferð var tekin upp. KR-ingar unnu alla tíu leiki sína fyrir 63 árum en markahæstu leikmenn þess liðs voru þeir Þórólfur Beck (16 mörk), Sveinn Jónsson (10 mörk) og Ellert B. Schram (8 mörk). Síðasta liðið á undan Blikum til að vinna fyrstu sex leiki sína var lið FH sumarið 2005 en það FH-liðið var búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn þremur umferðum fyrir lok móts. Sex af þessum sjö liðum urðu Íslandsmeistarar um haustið eða öll lið nem Keflavíkliðið frá 1997. Keflavík vann sex fyrstu leiki sína fyrir 25 árum síðan en síðan aðeins einn af síðustu tólf leikjum síðan sem þýddi að liðið endaði mótið í sjötta sæti. Besta byrjun í fyrstu sex leikjunum í efstu deild: KR 1959 6 sigrar og +24 í markatölu (27-3) Breiðablik 2022 6 sigrar í 6 leikjum og +15 í markatölu (19-4) FH 2005 6 sigrar í 6 leikjum og +14 í markatölu (16-2) Keflavík 1973 6 sigrar í 6 leikjum og +13 í markatölu (15-2) Valur 1978 6 sigrar í 6 leikjum og +12 í markatölu (17-5) ÍA 1995 6 sigrar í 6 leikjum og +10 í markatölu (12-2) Keflavík 1997 6 sigrar í 6 leikjum og +9 í markatölu (11-2)
Besta byrjun í fyrstu sex leikjunum í efstu deild: KR 1959 6 sigrar og +24 í markatölu (27-3) Breiðablik 2022 6 sigrar í 6 leikjum og +15 í markatölu (19-4) FH 2005 6 sigrar í 6 leikjum og +14 í markatölu (16-2) Keflavík 1973 6 sigrar í 6 leikjum og +13 í markatölu (15-2) Valur 1978 6 sigrar í 6 leikjum og +12 í markatölu (17-5) ÍA 1995 6 sigrar í 6 leikjum og +10 í markatölu (12-2) Keflavík 1997 6 sigrar í 6 leikjum og +9 í markatölu (11-2)
Besta deild karla Breiðablik KR Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Tveir áhorfendur létust á mismunandi tímum á sama leikvangi Sport „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Saka FIFA um að stofna „gervi“ leikmannasamtök Fótbolti San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Fótbolti Fleiri fréttir „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Sjá meira