Sjáðu Blika fara illa með meistarana og hvernig nýi gamli maðurinn bjargaði KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2022 08:31 Blikar fagna einu marka sinna á móti Víkingum í Víkinni í gær. Vísir/Hulda Margrét Sjöttu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og eftir leikinn munar orðið átta stigum á toppliði Breiðabliks og Íslandsmeisturum Víkings.
Breiðablik vann sinn sjötta leik í röð nú með því að mæta á heimavöll ríkjandi meistara í Víkinni og fagna 3-0 sigri. Öll mörkin komu í seinni hálfleiknum. KR vann líka mikilvægan og langþráðan heimasigur. Nú má sjá mörkin úr þessum leikjum hér inn á Vísi. Ísak Snær Þorvaldsson og Jason Daði Svanþórsson nýttu sér mistök í Víkingsvörninni til að koma Blikunum í 2-0 en þriðja markið var algjört augnakonfekt. Kristinn Steindórsson skoraði það með frábæru skoti eftir magnaða sókn þar sem boltinn gekk vel á milli fjölmargra Blika á stuttu svæði. Klippa: Mörk Blika á móti Víkingum Þorsteinn Már Ragnarsson skipti aftur yfir í KR á dögunum eftir sjö ára fjarveru. Hann hefur verið í Garðabænum síðustu ár en var fljótur að minna á sig í Vesturbænum. Skoraði reyndar ekki eftir að hafa komið inn á sem varamaður í Eyjum á dögunum en var hetjan í gær. Þorsteinn Már kom inn á sem varamaður á 61. mínútu og sex mínútum síðar hafði hann tryggt KR-ingum 1-0 sigur á Keflavík. Þetta var líka fyrsti heimasigur KR-liðsins en liðið hafði mistekist að vinna fyrstu tvo. Klippa: Sigurmark KR á móti Keflavík
Besta deild karla Breiðablik KR Mest lesið Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Fótbolti Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Fótbolti „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Körfubolti Gidsel kom í veg fyrir gleði Orra en Viktor varði víti sem Íslendingar dæmdu Handbolti Mætti á völlinn með jólamynd af Stefáni Teiti og frú Fótbolti Uppgjörið: Aserbaísjan - Ísland 0-2 | Öruggur sigur og úrslitaleikur framundan Fótbolti Kennie Chopart lagði upp sigurmark KR á Hlíðarenda annað árið í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Sjá meira