Sjö starfsmönnum HSN sagt upp: „Þarna er verið að ráðast á tekjulægsta fólkið“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. maí 2022 15:42 Sjö starfsmönnum í ræstingu og þrifum hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík hefur verið sagt upp störfum. Vísir/Vilhelm Stéttarfélagið Framsýn mótmælir harðlega útboði á ræstingum og þrifi hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sem leitt hefur til þess að sjö félagsmenn Framsýnar hafa misst starfið hjá stofnuninni. Forstjórn HSN telur líklegt að fólkinu bjóðist störf hjá stofnuninni á næstu misserum. „
Við teljum þetta vera glórulausar uppsagnir. Þarna er verið að segja upp sjö starfsmönnum, sem hafa verið að sjá um ræstingar og þrif og frekari aðstoð, í hagræðingarskyni. Því er borið við að stofnunin standi ekki vel fjárhagslega og þurfi að taka á sínum málum,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður stéttarfélagsins Framsýnar. Heilbrigðisstofnun Norðurlands boðaði nýverið til útboðs á ræstingum og þrifum hjá fimm starfsstöðvum stofnunarinnar í samstarfi við Ríkiskaup. Aðeins bárust tilboð í ræstingar hjá starfsstöðvum HSN á Akureyri og Húsavík, en ekki á Blönduósi, Sauðárkróki og Siglufirði. Stofnunin spari allt að 20 milljónir á ári Fyrirtækið Dagar bauð í verkefnið á Húsavík og fékk tilboðið samþykkt fyrir rúmar 29,7 milljónir króna á ári. Hreint fékk tilboð sitt samþykkt á Akureyri, fyrir rétt tæpar 8,3 milljónir króna á ári. Forstjóri HSN segir að með hagræðingunni spari stofnunin fimmtán til tuttugu milljónir króna á ári. „Stofnunin er rekin með halla og við erum að leita allra leiða til þess að hagræða og sú leið var farin að bjóða út ræstingar. Það kom hagstætt tilboð sem við höfum tekið. Ég geri ráð fyrir því að hluti af þeim starfsmönnum, sem hafa misst vinnuna þarna, að þeim muni bjóðast störf hjá okkur við önnur störf þegar þau losna,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN, í samtali við fréttastofu. „Einhverjum mun bjóðast að koma til starfa hjá þessu fyrirtæki sem tekur við þessu verkefni. Almennt er nú gott atvinnuástand á svæðin og það vantar víða fólk þannig að ég held að menn eigi nú ekki að óttast það að fá ekki störf við sitt hæfi.“ Fóru fram á að uppsagnirnar yrðu dregnar til baka Aðalsteinn Árni, formaður Framsýnar, fordæmir uppsagnirnar. Sjö hafa misst vinnuna hjá starfsstöð HSN á Húsavík vegna hagræðinganna, þar af sex konur og einn karlmaður. „Þarna er verið að ráðast á tekjulægsta fólkið, láglaunakonur hjá stofnuninni. Svona vinnubrögð eru þessari stofnun til mikillar skammar og eiga bara ekki að viðgangast í dag, að menn hagi sér með þessum hætti,“ segir Aðalsteinn. „Við fórum fram á að þeir myndu endurskoða þetta og hætta við þessar uppsagnir en þeir urðu ekki við því að hætta við þær. Síðan er spurning hvaða snillingur gat fundið það út í excel skjali að þetta væri, þegar uppi er staðið, ódýrara fyrir stofnunina, að bjóa þetta út frekar en að halda í starfsfólkið.“ „Ég fordæmi þessi vinnubrögð og finnst ömurlegt að menn skuli ganga þessa leið. Við erum enn með þá kröfu að þeir endurskoði þetta, ráði fólkið upp a nýtt og hætti þessu bulli.“ Horfi til þjónustu sem snerti íbúana ekki beint Jón Helgi segir að með þessum aðgerðum sé stofnunin að reyna að verja þjónustuna við notendur sem best. „Við viljum gjarnan halda eins mörgu fagfólki við störf hjá okkur eins og við getum. Þannig að það má segja að stoðþjónustan, sama hvort það sé bókhald eða önnur slík þjónusta sé undir meira álagi en hjá þeim sem eru að vinna í beinni þjonustu við sjúklingana,“ segir Jón Helgi. „Við þurfum á öllum þeim læknum og hjúkrunarfræðingum, sem eru hér við störf, að halda til að veita þjónustu. Vissulega horfa stjórnendur á þætti sem ekki snúa beint að þjónustu við íbúana.“ Harðdrægt að halda rekstri heilbrigðisstofnunar réttu megin við núllið Hann gerir ráð fyrir að þeim sem sagt var upp muni bjóðast önnur störf hjá stofnuninni. „Ég þykist vita að það muni losna einhver störf hérna hjá okkur en auðvitað er fólki frjálst að þiggja það eða fara til annarra verkefna. En það verða einhver störf sem losna hérna hjá okkur og ég veit að það fyrirtæki sem tekur við þessu vill kanna hug þeirra starfsmanna sem hafa verið hér í vinnu hvort þeir hafi áhuga á að koma til starfa hjá þeim. Ég hef mikla trú á þí að þessi málefni starfsmanna muni leysast farsællega,“ segir Jón Helgi. Hann bendir á að stofnunin bjóði út alls konar verkefni, ekki bara ræstingar og þrif. „Það er verið að bjóða út snjómokstur og þvottaþjónustu á Húsavík. Það er bara mjör harðdrægt að halda rekstri heilbrigðisstofnana réttu megin við núllið og tryggja þjónustu við íbúana. Þetta er bara það sem menn þurfa að horfa framan í að þetta er harður heiur sem þarf að berjast við.“
Stéttarfélög Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri Norðurþing Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira