Jafnt í toppslagnum í Noregi | Rosengård tók toppsætið í Svíþjóð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. maí 2022 15:31 Guðrún og stöllur hennar eru komnar á toppinn. Rosengård Vålerenga og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Þá fór fjöldi leikja fram í sænsku úrvalsdeild kvenna þar sem alls voru sex Íslendingar í eldlínunni.
Ingibjörg Sigurðardóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir voru í byrjunarliðunum þegar Brann heimsótti Vålerenga. Heimakonur komust yfir í fyrri hálfleik en gestirnir jöfnuðu í þeim síðari. Ingibjörg spilaði allan leikinn á meðan Svava Rós var tekin af velli í hálfleik. Liðin eru jöfn á toppi deildarinnar með 22 stig, eftir að hafa unnið fyrstu sjö leiki sína var leikur dagsins sá fyrsti þar sem þau töpuðu stigum. Í Svíþjóð spilaði Guðrún Arnardóttir allan leikinn er meistarar Rosengård unnu 3-0 útisigur á Umea. Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir komu inn af bekknum er Kristianstad vann 4-1 sigur á IF Brommapojkarna. Hallbera Guðný Gísladóttir lagði upp og nældi sér í gult er lið hennar Kalmar tapaði 4-2 á útivelli fyrir Berglindi Rós Ágústsdóttur og stöllum hennar í Örebro. Þá varð Hlín Eiríksdóttir fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar Piteå tapaði naumlega 2-1 á heimavelli fyrir Eskilstuna United. Sjálfsmarkið kom þegar aðeins fimm mínútur voru til leiksloka. Staðan í deildinni er þannig að Rosengård er á toppnum með 17 stig eftir sjö umferðir. Piteå er í 3. sæti með 13 stig, Örebro er í 6. með 12 stig, Kristianstad í 7. með 11 stig og Kalmar í 12. sæti með sex stig.
Fótbolti Sænski boltinn Norski boltinn Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bale af golfvellinum og á skjáinn Enski boltinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Enski boltinn Enska augnablikið: Sá allra svalasti Enski boltinn „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ Íslenski boltinn Donnarumma skilinn eftir heima Enski boltinn „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg seld til Freiburg Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Donnarumma skilinn eftir heima Kolbeinn tryggði stigin þrjú Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Spánn skiptir þjálfaranum út Fengu loksins leyfi til að spila spænskan deildarleik í Miami Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Barcelona rúllaði yfir Como Sjá meira