Bað um frestun á inngöngu sinni í frægðarhöllina til að geta farið í meðferð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. maí 2022 12:00 Hope Solo spilaði alls 202 A-landsleiki fyrir Bandaríkin. vísir/getty Hope Solo, fyrrverandi markvörður bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur beðið um frestun á því að vera tekin inn í frægðarhöll fótboltafólks þar í landi þar sem hún er á leið í meðferð.
Ekki er langt síðan hin fertuga Hope Solo var handtekin fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Samkvæmt fréttamiðlum ytra voru börnin hennar tvö, tveggja ára tvíburar, með henni í bílnum er hún var handtekin. Í yfirlýsingu sem Hope sjálf birti á samfélagsmiðlum þá óskaði hún eftir því að inngöngu hennar í frægðarhöll bandaríska fótboltans yrði frestað en hún átti að hljóta inngöngu á þessu ári. „Ég hef sett mig í samband við Frægðarhöllina og vinsamlegast beðið um að fresta inngöngu minni til ársins 2023. Ég hef sjálfviljug skráð mig í meðferð til að takast á við erfiðleika mína tengdum áfengi,“ segir í yfirlýsingu frá landsliðskonunni fyrrverandi. „Á þessum tíma er öll mín orka og einbeiting á eigin heilsu og að sjá um fjölskyldu mína. Ég þakka Frægðarhöllinni fyrir stuðning þeirra og að skilja ákvörðun mína,“ bætti hún við. pic.twitter.com/GBsplH3CuF— Hope Solo (@hopesolo) April 29, 2022 Alls spilaði Hope Solo 202 leiki fyrir bandaríska landsliðið. Hún hélt hreinu í 102 þeirra og varð heimsmeistari sem og Ólympíumeistari tvívegis. Hún lagði hanskana á hilluna árið 2016.
Fótbolti Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Mikael beittur kynþáttaníði Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Enski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Fleiri fréttir Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Mikael beittur kynþáttaníði Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Sjá meira