Ríkið fær fimmtán milljarða króna frá Landsvirkjun Árni Sæberg skrifar 29. apríl 2022 18:10 Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Egill Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti tillögu stjórnar um fimmtán milljarða króna arðgreiðslu til eigenda í dag, en íslenska ríkið er eini eigandi fyrirtækisins.
Aðalfundur var haldinn í dag og skipaði fjármála- og efnahagsráðherra í stjórn Landsvirkjunar, samkvæmt lögum um fyrirtækið. Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Gunnar Tryggvason, Jón Björn Hákonarson og Soffía Björk Guðmundsdóttir. Sú breyting varð því, að Soffía Björk kom ný inn í stjórn í stað Hákonar Hákonarsonar. Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jens Garðar Helgason, Ragnar Óskarsson, Guðveig Eyglóardóttir, Jón Bragi Gunnlaugsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir. Aukið svigrúm til aðrðgreiðslna eftir lækkun skuldahlutfalls Aðalfundurinn samþykkti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár. Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til ríkisins upp á fimmtán milljarða króna fyrir árið 2021. Í ávarpi stjórnarformanns í ársskýrslu 2021 segir að ákveðin tímamót í rekstri félagsins gefi svigrúm til arðgreiðslna. „Ákveðin tímamót urðu í rekstri Landsvirkjunar árið 2021, þegar skuldahlutföll urðu sambærileg við sömu mælikvarða hjá systurfyrirtækjunum á Norðurlöndum. Þetta þýðir að ekki þarf lengur að leggja höfuðáherslu á lækkun skulda og meira svigrúm er til þess að greiða arð til eiganda Landsvirkjunar, íslensku þjóðarinnar,“ segir Jónas Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar.
Landsvirkjun Orkumál Efnahagsmál Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Sjá meira