Leggur hanskana á hilluna eftir bardaga kvöldsins: Er á betri stað en síðast Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. apríl 2022 09:01 Tyson Fury mun leggja boxhanskana á hilluna í kvöld. Mikey Williams/Getty Images Hnefaleikakappinn Tyson Fury segist ekki geta beðið eftir því að leggja hanskana á hilluna. Hann hefur fengið mikla umfjöllun fyrir sigra sína innan hringsins og baráttu við þunglyndi utan hans.
Fury mætir Dillian Whyte síðar í dag í því sem verður síðasti bardagi hins 2.06 metra háa og 33 ára gamla Fury. Hann var í ítarlegu viðtali hjá The Guardian fyrir bardagann og fór þar yfir allt milli himins og jarðar. Fury á að baki 33 atvinnubardaga sem hnefaleikamaður, 32 af þeim hafa unnist á meðan einn endaði með jafntefli. Þá hefur 22 þeirra lokið með því að Fury roti andstæðing sinn. Stefnir hann á sömu niðurstöðu í dag. „Þetta er eilíf barátta,“ segir Fury í upphafi viðtalsins er hann ræðir baráttu sína við þunglyndi. Hann heldur áfram. I interviewed Tyson Fury and he spoke about coming to the end, maybe, fame and depression, traumatic past encounters and dramatic nights, fighting Wilder and Dillian Whyte. We hit deadlock over Kinahan but, apart from that, he was as interesting as ever.https://t.co/alBv1qS2Rt— Donald McRae (@donaldgmcrae) April 22, 2022 „Ég hef lært að lifa með þessu, ég höndla það betur núna. Áður vissi ég ekki neitt en nú veit ég allavega eitthvað,“ segir Fury áður en umræðan snýst að sjálfsvígstilraun hans þegar hann var á sínum versta stað fyrir nokkrum árum. Eftir að leggja hanskana á hilluna árið 2015 fór Fury algjörlega út af sporinu. Ásamt því að blása út þar sem hann át allt sem var hendi næst á drakk hann óhóflega mikið af áfengi og tók gríðarlegt magn af kókaíni. Á endanum var Fury kominn svo langt niður, svo þunglyndur, að hann reyndi að enda líf sitt þegar hann keyrði bíl yfir brú á 257 kílómetra hraða. Hann telur sjálfsvíg vera orsök flestra dauðsfalla hjá karlmönnum undir 35 ára á Bretlandseyjum. Fury hefur verið þunglyndur frá því í æsku en finnur ákveðna ró inn í hringnum. Hann virðist þó tilbúinn að leggja hanskana á hilluna aftur og virðist á betri stað en áður. Þessi magnaði hnefaleikakappi nennir ekki þessu eilífa áreiti sem fylgir því að vera íþróttamaður af hans stærðargráðu. „Þetta er erfitt því líf þitt er ekki þitt eigið. Ég verð mjög hamingjusamur þegar öllu er lokið eftir þennan bardaga. Ég ætla að stíga í burtu frá þessu öllu. Verð ekki lengur þessi frægi (e. celebrity) hnefaleikamaður, ekkert svoleiðis.“ „Þetta er síðasti bardaginn. Ég hef þénað fullt af pening, unnið fjölda titla og gert allt sem ég ætlaði mér að gera. Þessi bardagi ætti að vera fínn til að enda á.“ Þó Fury ætli ekki að keppa aftur þá stefni hann á að æfa eins og óður maður. Það er það sem viðheldur geðheilsunni. „Það er ekki að stíga inn í hringinn sem drífur mig áfram, það er að mæta á æfingar. Svo lengi sem ég get haldið því áfram, haldið mér í formi – andlega og líkamlega – þá mun ég halda áfram að æfa eins lengi og ég get. Pabbi er orðinn sextugur og hann æfir á hverjum degi, ég hef enga afsökun,“ segir Fury. FURY OUTWEIGHS WHYTE Tyson Fury weighed in almost a stone heavier than Dillian Whyte ahead of their huge all-British heavyweight world title fight at Wembley. pic.twitter.com/cBRUEQqsum— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 22, 2022 Ef Fury myndi vinna Whyte þá biði hans bardagi við Úkraínumanninn Oleksandr Usyk um IBF, WBA og WBO titlana en Usyk lamdi Anthony Joshua – landa Fury – í harðfisk í september á síðasta ári. Aðspurður hvort það heilli ekki að enda ferilinn þá slíkum bardaga þá segir Fury það ekki skipta sig miklu máli. „Af hverju? Út af peningum? Út af beltunum? Það hlýtur að vera annað hvort, ekki satt? Ég hef unnið öll beltin, þau skipta mig litlu máli,“ sagði heljarmennið Tyson Fury að endingu.
Box Tímamót Bretland Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Fótbolti Fleiri fréttir „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sjá meira