Er mamma sölumaður dauðans? Ástþór Magnússon skrifar 22. apríl 2022 11:00 Sunnudagskvöld 2016 fæddist lítil stúlka á Akranesi sem móðirin lýsti sem litlu fullkomnu eintaki af manneskju, lífinu í sinni tærustu mynd. Forseti Eisenhower varaði okkur við. Forsætisráðherra Svíþjóðar Ólaf Palme einnig og undir tóku meira en 1600 vísindamenn. Meira að segja bandaríski utanríkismálarefurinn Henry Kissinger[1] og fjöldi fræðimanna í alþjóða stjórnmálum hafa varað við því að stækkun NATO til austurs muni snúast uppí andhverfu sína og hreinlega grafa undan öryggi okkar. Útrýmingarhættan gegn lífinu í sinni tærustu mynd hefur sjaldan verið meiri en í dag. Ef einhver heldur byssu að hausnum á þér er þá rétti tímapúnkturinn til að draga þína byssu upp? Hann verður búinn að bana þér áður en þú nærð þínu drápsvopni úr slíðrinu. Í slíkri stöðu þarftu að horfast í augu við andstæðinginn og afvopna hann með yfirveguðum orðum til friðar. “Endalok lífs okkar hefst þann dag sem við þegjum yfir málum sem skipta máli”, skrifaði mamma litlu stúlkunnar frá Akranesi fyrr á þessu ári. Nú sem utanríkisráðherra Íslendinga virðist mamma hafa gleymt hlutverki sínu fyrir lífið í sinni tærustu mynd. Nú skottast mamma heimshorna á milli í blindri metnaðargirni sem sölumaður dauðans fyrir myrkraöflin sem ógna allri framtíð okkar, bæði minnar, þinnar og litlu 5 ára dótturinnar. Umkringd skrautlega uppábúnum pótintátum bandaríska heimsveldisins birtist mamma á samfélagsmiðlum eftir fundahöld um “hlutverk Íslands” í átökum sem ógna framtíð allrar heimsbyggðarinnar. “Það er líka mikilvægt að við Íslendingar sem herlaus þjóð gerum allt sem við getum til að leggja okkar af mörkum til að styðja við vina- og bandalagsþjóðir okkar” eru orðin sem ráðherrann ber nú á torg á meðan hún grefur undan heimsfriðnum í fullkomnu ábyrgðarleysi. Það sem mamma hefur lagt af mörkum fram að þessu sem utanríkisráðherra Íslands eru Íslenskar flugvélar undir drápstól til stríðsátaka auk þess að tala fyrir auknu vopnakapphlaupi með NATO útþenslu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir virðist hafa gleymt bæði móðurhlutverkinu og því hvernig Íslendingar sem vopnlaus þjóð hafa búið við frið lengur en nokkurt annað ríki. Við unnum ekki okkar stríð síðustu aldir með því að drepa hvort annað. Ég átti samtal við annan ráðherra ríkisstjórnar Íslands á dögunum og reyndi að upplýsa hann um hve hættulegt það væri að Finnland og Svíþjóð gangi í NATO á þessum tímapunkti. Hvernig Rússland telji það beina ógnun við sína öryggishagsmuni eins og komið hefur fram ítrekað síðasta áratug. Ráðherrann virtist eins og álfur út úr hól í málinu og sagði ríkisstjórnina ekkert ræða þetta, en spurði af hverju ætti að láta “einn mann” ráða því hver gangi í NATO. Auðvitað er Rússland ekki bara “einn maður”. Og ég spyr á móti af hverju á að láta illa upplýsta ofmetnaða smásál frá Akranesi með vanhugsuðum aðgerðum sínum velta því þunga hlassi að þjóð okkar verði útrýmt með kjarnorkusprengju jafnvel á næstu mánuðum eða árum? Hversvegna að taka slíka áhættu þegar aðrar friðsamlegar leiðir eru í boði? Árið 1999 skrifaði ég grein í Morgunblaðið og sagði m.a.: “Öldin okkar er blóði drifin stríðssaga. Við ættum að hafa lært af reynslunni og geta lagt hornstein að öld friðar nú. En lítið hefur breyst. Græðgi, eigingirni og smákóngahugsunarháttur ræður pólitíkinni og leiðtogarnir sem nú ættu að leiða okkur í öld friðar, láta stjórnast af ótrúlegum smámetnaði um veraldleg völd og bitlinga. Litlar og ungar sálir hafa hertekið stjórnartaumana og sameinast í vitleysunni í barnalegum stríðsleik Ameríkana sem heiminum vilja ráða. Leikurinn hefur markvisst lagt grunninn að nýjum alheimsófriði.” [2] Fimm árum síðar varð uppreisn í Úkraníu 2014. Fingraför bandarísku leyniþjónustunnar CIA eru á aðdragandum eins og ég vakti athygli á í forsetakosningum 2016. Í DV það ár skrifaði ég grein um áhrifavald forseta og sagði m.a.: “Evrópa er á barmi styrjaldar. Milljónir flóttamanna. Árekstrar menningarheima. Upphafið rakið til hernaðarbrölts Bandaríkjanna. Íslenskir ráðamenn aftur búnir að setja okkur á lista hinna viljugu þjóða nú til átaka við Rússland. Hernaðaruppbygging NATO er nú slík að Rússar hafa ekki séð neitt viðlíka nálægt landamærum sínum síðan árið 1941 þegar Þýskaland gerði innrás í Sovétríkin.”[3] Aðdragandinn að uppreisninni í Úkraníu er rakinn í kvikmynd Oliver Stone “Ukraine on Fire”[4] sem ætti að vera skylduáhorf allra áhrifavalda í stjórnmálum. Sannleikurinn sem þar kemur fram hefur ekki átt upp á pallborðið hjá málpípum NATO sem reyna að grafa undan trúverðugleika kvikmyndarinnar þótt hún sé byggð á vandaðri rannsóknarblaðamennsku og ótvíræðum staðreyndum.[5] Óvinur okkar er ekki Rússneska þjóðin. Verstu draumar Eisenhowers forseta hafa ræst. Upp er risinn máttur hins illa gegn mannkyni og lýðræði í smákóngum og potíntátum hernaðarmenningar og vopnaframleiðanda. Eins og blindir óþroskaðir kjölturakkar sjá þeir ekki augljósar leiðir til friðar. Einræðisherrar koma og fara. Enginn stjórnmálamaður lifir endalaust. Viljum við spila rússneska rúlettu með líf og framtíð barna okkar við einn slíkan sem kominn er út af sporinu og ógnar okkur með kjarnorkuvopnum? Forseti Íslands og öll hans ríkisstjórn hafa að undanförnu fengið ítrekað send bréf frá Alþjóðastofnuninni Friði 2000 með vandlega ígrunduðum tillögum að lausn deilunnar. Enginn þeirra hefur einu sinni sýnt þá velvild að svara, ekki einu sinni Mamma fimm ára stúlkunnar frá Akranesi. Hér má lesa síðasta bréfið sem Íslensku pótíntátarnir fengu sent. Höfundur er stofnandi Friðar 2000. [1] https://newslogic.in/world-news/kissinger-ex-envoys-predicted-war-in-ukraine-warned-against-nato-expansion/ [2] https://www.mbl.is/greinasafn/grein/510745/ [3] https://www.dv.is/frettir/2016/06/24/forsetakosningar-2016-ahrifavald-forseta/ [4] https://www.youtube.com/watch?v=yxau6qeWZ4w [5] https://traveltomorrow.com/oliver-stones-2016-ukraine-on-fire-defies-mainstream-narrative-on-russia-ukraine-war/ Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ástþór Magnússon Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Halldór 27.12.2025 Halldór Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar