Dregur úr vindi og úrkomu í dag Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2022 07:05 Undir kvöld stefnir í suðvestan þrjá til tíu metra á sekúndu og stöku smáél. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir allhvassri suðvestanátt með éljagangi í fyrstu og eru gular viðvaranir í enn í gildi um landið sunnan- og vestanvert fram eftir morgni.
Það dregur síðan hægt og rólega úr vindinum og úrkomunni þegar líður á daginn og undir kvöld stefnir í suðvestan þrjá til tíu metra á sekúndu og stöku smáél. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld byrji svo að snjóa eða að það verði slydda um landið suðaustan- og austanvert í hægum vindi fram til morguns. Þá komi mjög skörp vindaskil inn á landið þegar gengur í allhvassa eða hvassa sunnanátt á austanverðu landinu með hlýnandi veðri. Vestantil verður frekar hæg norðlæg átt og hiti um frostmark. „Þessi skil á milli tveggja ólíkra vindátta og vindstyrks eru mjög skörp og ber líklegast niður einhvers staðar á Suðurlandsundirlendinu þó að óvissan sé nokkuð stór núna í morgunsárið. Með þessum skilum fylgir einnig úrkoma og verður hún rigning á A-landi, en slydda eða snjókoma þegar vestar dregur. Eins og staðan er núna stefnir í þurran morgundag lengst af vestast á landinu, en það getur breyst með lítilli tilfærslu þessara skila.“ Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Allhvöss eða hvöss sunnanátt og rigning S- og A-til, en snjókoma eða slydda fyrir norðan. Mun hægari breytileg átt V-ast og bjart með köflum. Hiti um frostmark N- og V-til upp í 8 stiga hita SA-lands. Á sunnudag: Stíf suðlæg og síðan vestlæg átt með rigningu A-lands og hiti 3 til 8 stig, en snjókomu eða slyddu þegar vestar dregur og lækkandi hitastig. Útlit fyrir hægan vind og úrkomulítið veður allra vestast og hiti um og undir frostmarki. Styttir upp, lægir og kólnar um allt land um kvöldið. Á mánudag: Vaxandi suðaustlæg og austlæg átt með rigningu víða, en úrkomulítið NA-til. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Stíf sunnanátt og rigning S- og V-lands, annars úrkomulítið. Hiti 3 til 10 stig. Á miðvikudag: Snýst í norðlæga átt og snjókoma með köflum fyrir norðan, en þurrt sunnan heiða. Kólnar smám saman í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlæga átt og snjókomu víða, en þurrt SV-lands. Hiti um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira